18. janúar 2023

Skipulagsbreytingar hjá Mílu

Stjórn Mílu hefur samþykkt nýtt skipulag fyrirtækisins og var það kynnt starfsfólki í dag. Breyting verður á skipuritinu þar sem fjögur ný svið taka við af eldra skipulagi.

Stjórn Mílu hefur samþykkt nýtt skipulag fyrirtækisins og var það kynnt starfsfólki í dag. Breyting verður á skipuritinu, þar sem fjögur ný svið taka við af eldra skipulagi. Sviðin í nýju skipuriti eru Sala og þjónusta, Tækni, Innviðir og Fjármál.

Miklar breytingar hafa orðið á rekstrarumhverfi Mílu og á fjarskiptamarkaði síðustu misseri. „Við þurfum að bregðast við þessum breytingum og er nýju skipulagi ætlað að styðja við auknar áherslur fyrirtækisins á hraðari uppbyggingu og sköpun nýrra tækifæra með áherslu á frumkvæði, umbótahugsun og skilvirkni“ segir Erik Figueras Torras forstjóri Mílu. Nýtt skipulag tekur gildi frá og með deginum í dag.

Mestar breytingar eru við stofnun Tæknisviðs og Innviðasviðs. Undir Tæknisviði verða tæknieiningar innan Mílu sameinaðar undir einum hatti og undir Innviðasviði eru einingar sem snúa að uppbyggingu innviða sameinaðar. Ráðið verður í stöðu framkvæmdastjóra Innviðasviðs í kjölfar þessara breytinga.