Vinnureglur og staðlar

Frágangur á fjarskiptalögnum vegna ljósleiðara. Míla leggur eingöngu ljósleiðaraheimtaugar í nýbyggingum og kallar það á breyttar aðferðir við lagningu innanhússlagna og fjarskiptatengingar í nýbyggingum. Míla getur veitt verktökum ráðgjöf um hvernig ganga skuli frá fjarskiptalögnum.

Míla leggur eingöngu ljósleiðaraheimtaugar í nýbyggingum og kallar það á breyttar aðferðir við lagningu innanhússlagna og fjarskiptatengingar í nýbyggingum. Míla getur veitt verktökum ráðgjöf um hvernig ganga skuli frá fjarskiptalögnum. Þá segir ÍST 151:2016 staðallinn skýrt til um hvernig frágangur á fjarskiptalögnum skal vera:

9.1 Frágangur á fjarskiptalögnum

"Öllum fjarskiptalögnum á að vera skilað fullfrágengnum með endatenglum í herbergjum og með tengilistum í tengiskápum. Einnig skal verktaki setja upp alla tengiskápa samkvæmt þessum staðli. Tækjabúnaður í tengiskápum er ekki meðtalinn í útboði þar sem reikna má með að að íbúar húsnæðisins óski eftir mismunandi fjarskiptakerfum frá mismunandi þjónustuaðilum sem rétt er að eigandinn sjálfur taki ákvörðun um þegar flutt er inn í húsnæðið.  Eðlilegt er að reikna bæði með kóaxlögnum og netlögnum (CAT) innan hverrar íbúðar."

"Í fjöleignarhúsi skal einnig reikna með að verktaki skili verkinu með fjarskiptalögnum frá húskassa til allra íbúða, bæði kóaxlögnum og netlögnum (CAT og/eða ljósleiðara) sem enda í tengilistum. Auk þess skal verktaki einnig koma öllum tengiskápum fyrir í sameign með tengilistum samkvæmt þessum staðli. Tækjabúnaður í tengiskápum er ekki meðtalinn í útboði þar sem um mismunandi fjarskiptakerfi er að ræða frá mismunandi þjónustuaðilum  sem rétt er að eigendur íbúðanna taki ákvörðun um þegar flutt er inn í húsnæðið."  

Innanhússlagnir - vinnureglur Mílu


 Skýringar:

  • Strengir frá fjarskiptafyrirtækjum í lokuðum inntakskössum (eign fjarskiptafyrirtækis)
  • Innanhússlagnir tengjast á tengilista með endatengjum í húskassa merktar íbúðum (eign húseiganda) 
  • Einfalt fyrir notanda að færa sig á milli fjarskiptafyrirtækja með því að tengja frá inntaki yfir í húskassa með  ljóstengisnúru (patch snúru)
  • Innanhúss -  strengur kemur inn í íbúð og endar í boxi í endatengi svo hægt sé að tengja með ljóstengisnúru í viðkomandi notandabúnað fjarskiptafyrirtækis
  • Einfalt fyrir notanda að færa sig á milli fjarskiptafyrirtækja og engin þörf á að brjóta ljósþráð.

Kostir: 

  • Óheft aðgengi allra fjarskiptafyrirtækja tryggt að innanhússlögninni 
  • Aldrei þarf að vinna aftur við innanhússlögnina eftir að hún hefur verið lögð
  • Ekkert bókhald þarf fyrir innanhússlagnir þar sem íbúðir eru merktar á tengilista
  • Skýr skipti á eignarhaldi og ábyrgð
    • Húseigandi á innanhússlögnina
    • Fjarskiptafyrirtæki á inntakskassa
  • Hægt að mæla gæði innanhússlagna
  • Í samræmi við ÍST-151:2016