25. ágúst 2023

Míla tífaldar hraðann

Míla mun á næstu mánuðum bjóða viðskiptavinum tífalt hraðari ljósleiðaratengingu. Undir merkjum „10x – Vettvangur til framtíðar“ mun fjarskiptafélögum og viðskiptavinum þeirra standa til boða að uppfæra heimili á ljósleiðara Mílu í 10 gígabita á sekúndu á völdum svæðum innan höfuðborgarsvæðis strax 1. október.

Á haustfundi fjarskiptainnviðafyrirtækisins Mílu sem haldinn var í dag, þriðjudag 22. ágúst, kynnti fyrirtækið í fyrsta sinn á Íslandi möguleika á tíföldun hraða ljósleiðaratenginga til heimila og fyrirtækja. Nettenging með 10 gígabita á sekúndu í báðar áttir er tíföldun þess hraða sem best þekkist í dag.

Uppbygging í þrepum

Þessi aukna geta verður innleidd í þrepum og hefst þann 1. október næstkomandi. Til þess að virkja þessa nýju byltingartengdu tækni þarf að skipta um búnað á báðum endum ljósleiðarans. Fyrsta svæðið sem býður allt að 10 gígabita á sekúndu þjónustusvæði Múlastöðvar í Reykjavík. Öðrum svæðum höfuðborgarsvæðisins verður fyrst um sinn boðinn möguleiki á 2,5 gígabita á sekúndu sem uppfærður verður í skrefum, með það að markmiði að fyrir 1. apríl 2024 eigi verði öll heimili á höfuðborgarsvæðinu sem tengjast ljósleiðara Mílu að hafa möguleika á 10x aðgangi.
Í framhaldinu verður hafist handa á landsbyggðinni. Það er skýr stefna Mílu að geta boðið viðskiptavinum aðgang að 10x þar sem Míla býður upp á ljósleiðara. Hraði uppbyggingar ræðst af viðtökum 10x og fjölda viðskiptavina sem kjósa að virkja 10x vettvanginn. Samhliða uppbyggingu 10x mun Míla halda áfram kröftugri ljósleiðaravæðingu heimila um allt land og þar í kjölfarið 10x.

Rík þörf fyrir 10x

Tíföldun hraða, afkastaaukning og innleiðing nýrrar tækni í ljósleiðarakerfum Mílu er þýðingarmikil fyrir heimilin í landinu. Sjónvarpsþjónusta í miklum gæðum, leikjaspilun, eða fjarvinna með mikið gagnamagn og gagnvirkni krefst sítengingar við net og mikils hraða. Hægt verður að tengja mörg tæki við netið á samtímis án þess að það hægi á sér.
Áætlað hefur verið að á næstu árum séu allt að 20 virk tæki á hverju heimili sem krefjast nettengingar. Símar og tölvur ásamt sjónvarpstækjum og myndlyklum, ryksugu vélmennum og svo framvegis. Myndstreymi 4K eða 8K gæðum, gervigreind, sýndarheimar og aukin notkun skýjalausna kallar á betri tengingar.

Mun betri upplifun

Með tengingu við 10x vettvanginn vill Míla tryggja 10 sinnum betri upplifun. Það liggur ekki í áhrifaríkum niðurstöðum nethraðaprófa, heldur í sterkri tengingu sem býður öllum tækjum heimilis það sem þarf hverju sinni, án þess að hafa áhrif á önnur tæki og notendur.
Alþjóða fjarskiptasambandið áætlar að bandbreiddarþörf Evrópskra heimila aukist um 20 prósent ári. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins áætlar 40 prósenta aukningu að meðaltali næstu 7 – 10 árin. Nýjar tæknilausnir krefjast sífellt meiri bandbreiddar. Nýr 10x vettvangur undirbýr Mílu fyrir þessa hröðu þróun fjarskiptamarkaðar þannig að hægt verði í framtíðinni að bregðast við enn meiri eftirspurn um meiri bandbreidd.

Ísland í fararbroddi í Evrópu

Síðustu ár hefur Ísland verið í fararbroddi meðal þjóða Evrópu þegar kemur að hlutfalli heimila með virka tengingu við ljósleiðara. 10x vettvangur Mílu mun styrkja Ísland enn frekar til forystu á fjarskiptamarkaði Evrópu.
Með nýjum vettvangi 10x er Míla að svara eftirspurn íslenskra heimila nú og til framtíðar, því 10 gígabitar á sekúndu til heimila er ekki endamarkmiðið, heldur aðeins næsta varða á leið til framtíðar.