26. október 2023

Marinó Örn nýr stjórnarformaður Mílu

Marinó Örn Tryggvason hefur verið kjörinn stjórnarformaður Mílu. Áður gegndi Marinó stöðu forstjóra Kviku banka frá 2019 til 2023, eftir að hafa verið aðstoðarforstjóri bankans frá 2017.

Á síðasta stjórnarfundi Mílu hf. var Marinó Örn Tryggvason kjörinn stjórnarformaður félagsins. Áður gegndi Marinó stöðu forstjóra Kviku banka frá 2019 til 2023, eftir að hafa verið aðstoðarforstjóri bankans frá 2017. Fram að þeim tíma starfaði hann hjá Arion banka og forvera hans frá árinu 2002. Marinó tekur við af Marion Calcine, sem sinnti hlutverki stjórnarformanns tímabundið og situr hún áfram í stjórn félagsins.

,,Míla er öflugt félag sem sinnir mikilvægum verkefnum og hjá því starfar hæft starfsfólk og stjórnendur. Ég er Akureyringur og það er augljóst að ein af forsendum blómlegrar byggðar á Akureyri eru góðir samgöngu- og fjarskiptainnviðir. Það sama á auðvitað um landið allt því líklega er fátt jafn mikilvægt fyrir uppbyggingu samfélags, atvinnulífs og betri lífskjara en traust og góð fjarskipti. Mig hlakkar til að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu þessa mikilvæga félags“ segir Marinó Örn Tryggvason, stjórnarformaður Mílu.

„Við erum afar ánægð með að hafa fengið Marinó til liðs við Mílu. Álítum við það sérstaklega jákvætt að stjórnarformaður fyrirtækis eins og Mílu sé Íslendingur sem þekkir vel til á íslenskum markaði og skilur því vel mikilvægi öruggra fjarskipta fyrir byggðir landsins. Marinó er einnig með ríka reynslu af íslensku atvinnu- og efnahagslífi sem er mikill styrkur fyrir Mílu“ segir Marion Calcine fráfarandi stjórnarformaður Mílu.