Sjálfbærni
Míla er burðarás fjarskipta á Íslandi og hefur það hlutverk að tengja samfélagið saman með öruggum og áreiðanlegum innviðum. Öruggir fjarskiptainnviðir er lykilþáttur í velferð og búsetugæðum landsmanna og grundvöllur að fjölbreyttri og öflugri atvinnustarfsemi. Sjálfbærni er þar að leiðandi órjúfanlegur þáttur í fjarskiptastarfsemi og liður í því að Míla sinni hlutverki sínu til framtíðar með ábyrgum og öruggum hætti.

Sjálfbærniskýrsla 2025
Í sjálfbærniskýrslu Mílu er gert grein fyrir helstu áherslum, aðgerðum og framvindu mála á sviði sjálfbærni ásamt því þess að greina frá langtímamarkmiðum og sýn Mílu í sjálfbærnimálum.
Stoltur aðili Festu
Míla er stoltur aðili Festu, miðstöð um sjálfbærni, sem er vettvangur fyrirtækja og stofnana sem vinna markvisst að sjálfbærni í rekstri og samfélagi.
Með aðild að Festu tekur Míla þátt í samvinnu, miðlun þekkingar og samtali um sjálfbæra þróun í íslensku atvinnulífi.

Styrkir til góðra verka
Míla starfrækir styrkjastefnu sem miðar að því að styðja verkefni sem skapa jákvæð áhrif á samfélagið þar sem fyrirtækið starfar. Míla leitast við að styðja við verkefni sem gagnast samfélaginu í heild og hafa tengsl við kjarnastarfsemi þess. Áhersla Mílu í styrktarmálum tengjast verkefnum sem stuðla að slysavörnum, björgun og öryggi, nýsköpun tengd fjarskiptum og endurnýjanlegri orku, jafnrétti og lýðheilsu.