
2,5x meiri hraði

Get ég tengst?
Míla er á hraðaferð og býður upp á nettengingar með allt að 10 gigabita hraða fyrir heimili og atvinnurými. Flettu upp heimilisfangi til að sjá hvort þitt heimili eigi kost á ljósi frá Mílu.
Af hverju 2,5x?
Af hverju 2,5x?

Meiri hraði
2,5x tengingar eru mun afkastameiri en eins gígabits tengingar sem eru algengustu ljósleiðaratengingarnar í dag. Nánar tiltekið 2,5 sinnum hraðari. Þarftu að sækja mikið af gögnum, myndasafn fjölskyldunnar, tölvuleik eða bíómynd í fullum gæðum? Það mun ganga mun hraðar fyrir sig en áður – sérstaklega með uppfærðum endabúnaði og WiFi 7.
Meira svigrúm
Það snýst ekki alltaf allt um mesta mögulega hraðann. Stundum eru allir á heimilinu eða vinnustaðnum að nota netið á sama tíma og þá þarf að vera nægt svigrúm til þess að allir geti sinnt sínu samhliða.
Umhverfisvænni tækni
2,5x er byggt á nýrri tækni sem hefur vistvænna fótspor, notar minna af orku og skilar samt betri hraða og bættri upplifun.
Samanburður

1 gígabiti á sek.
hraði.

2,5 gígabitar á sek.
Meiri hraði.
Spurt & svarað
Eru 2,5x tengingar 2,5 sinnum dýrari?
Verðlagning 2,5x tenginga er í höndum fjarskiptafélaganna en almennt séð er verðmunur milli hefðbundinna tenginga og 2,5x tenginga hóflegur sé hann á annað borð einhver.
Get ég notað eigin netbúnað?
Já, þú getur notað eigin endabúnað en í sumum tilvikum þarf að uppfæra ljósleiðaraboxið svo það styðji 2,5x meiri hraða. Uppsetning á ljósleiðaraboxi, sé þess þörf, er framkvæmd af tæknifólki Mílu án endurgjalds. Við mælum svo eindregið með því að uppfæra netbúnað í Wifi7 til að fullnýta aukinn hraða.
Hvað kostar uppsetning á 2,5x meiri hraði?
Heimsókn til uppsetningar á 2,5x er án endurgjalds frá Mílu nema í þeim tilvikum þar sem ljósleiðaraheimtaug er frá öðrum en Mílu en þjónustan sjálf er veitt af Mílu. Í þeim tilvikum veitir þitt fjarskiptafélag upplýsingar um kostnað sé hann innheimtur. Sé þörf á heimsókn frá Mílu þá förum við yfir netsnúrur og innanhússlagnir, staðfestum að þær séu í lagi og af nægilegum gæðum til að styðja við fullan hraða á 2,5x tengingum.
Hvar fæst 2,5x?
Hvar fæst 2,5x?