Um okkur

Míla tengir byggðir landsins við umheiminn og er mikilvægur hlekkur í öryggisfjarskiptum landsins, hvort sem er á láði, lofti eða legi. Míla er lífæð samskipta.

Fyrirtækið Míla ehf. var stofnað í apríl 2007. Míla á og rekur víðtækt koparkerfi, ljósleiðara- og örbylgjukerfi sem nær til allra heimila, fyrirtækja og stofnana á landinu. Míla er undirstaða fjarskiptaþjónustu um allt land. 

Míla leggur ríka áherslu á áreiðanleika og öryggi.  Míla er í stöðugri framþróun í þeim tilgangi að viðhalda forystu á fjarskiptamarkaði. Fyrirtækið ætlar sér að leita bestu lausna hverju sinni og veita faglega þjónustu. 

Almennar upplýsingar 

Míla hf.  
Stórhöfði 22-30 
110 Reykjavík 
Ísland 

Kennitala: 460207-1690 
VSK númer: 94064 
Veffang: mila.is 
Netfang: mila@mila.is 
Sími: 585-6000 
Fax: 585-6050

Fjarskiptakerfi Mílu 

Fjarskiptakerfi Mílu tengir saman einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir og er miðpunktur flestra fjarskipta á Íslandi auk þess að tengja landið við umheiminn. Fjarskiptakerfið byggir á tveim megin kerfum sem eru Stofnnet og Aðgangsnet. Auk þess bíður Míla viðskiptavinum sínum hýsingarþjónustu og hefur fyrirtækið yfir að ráða um 600 hýsingarstöðum um allt land.

Stofnnet Mílu

Byggir að mestu á ljósleiðurum en einnig á örbylgjusamböndum. Ljósleiðarakerfi Mílu nær til allra þéttbýliskjarna landsins og liggur hringinn um landið. Uppbyggingu ljósleiðarakerfisins er ávallt þannig háttað að reynt er að tryggja hringtengingu til að auka öryggi fjarskiptakerfisins. Á þeim svæðum sem ekki eru tengd ljósleiðara eru stafræn örbylgjusambönd notuð til að tryggja öryggi fjarskipta.

Aðgangsnet Mílu 

Er öflugt og fjölþætt og byggir á koparlínum og ljósleiðurum. Koparkerfið er þar víðtækast þar sem nánast öll heimili, fyrirtæki og stofnanir á landinu tengjast kerfinu. Míla hefur unnið að uppbyggingu Ljósveitu á flestum þéttbýlisstöðum landsins. Ljósveita Mílu veitir heimilum háhraðasamband þar sem ljósleiðari er lagður að götuskáp og þaðan eru fyrirliggjandi lagnir notaðar til heimila hvort sem það er kopar eða ljósleiðari. Míla leggur ljósleiðara í stað kopars í nýjum hverfum sem eru að byggjast upp. 

Aðstöðuleiga hjá Mílu 

Míla býður viðskiptavinum sínum leigu á aðstöðu fyrir búnað sinn á um 600 hýsingarstöðum um allt land bæði í tækjahúsum og í möstrum. Meirihluti viðkomandi tækjarýma eru í eigu Mílu en önnur er í eigu þriðja aðila. Viðskiptavinir fá aðgang að tækjahúsum eða möstrum fyrir búnað sinn, auk aðgangs að rafmagni og tengingu við fjarskiptanetið. 

Viðskiptavinir

Míla veitir viðskiptavinum sínum aðgengi að fjarskiptakerfi sínu og sér þeim fyrir aðstöðu og dreifileiðum fyrir þeirra þjónustu. Míla leggur áherslu á að veita viðskiptavinum sínum öfluga og örugga þjónustu og ráðgjöf og sér þeim fyrir öruggum fjarskiptum.

Það eru aðeins fyrirtæki með fjarskiptaleyfi sem hafa möguleika á að nýta sér þjónustu Mílu.

Viðskiptavinir Mílu 

Samstarfsaðilar

Samstarfsaðilar Mílu eru staðsettir í öllum landshlutum og sjá um að þjónusta fjarskiptakerfi Mílu um land allt.

Vestfirðir

Míla Ísafirði 
Árnagötu 1, 400 Ísafjörður

Særaf ehf.  
Silfurgötu 5, 400 Ísafjörður

Telnet ehf. 
Stillholti 18, 300 Akranes. 

Vesturland

Telnet ehf.
Stillholti 18, 300 Akranes

Reykjanes

Rafholt Suðurnes
Smiðjuvegur 8, 200 Kópavogur

Suðurland - Árnessýsla

TRS, Tölvu og rafeindaþjónusta Suðurlands     
Eyrarvegur 37, 800 Selfoss

Suðurland - Rangárvallasýsla

Smári ehf.
860 Hvolsvöllur

Vestmannaeyjar

Geisli ehf.
Hilmisgötu 4, 900 Vestmannaeyjar

Austurland

Rafey ehf.
Miðási 11, 700 Egilsstaðir

Austurland

Konnekt ehf.
780 Höfn í Hornafirði

Norðurland - Akureyri

Tengill ehf.
Súluvegur 2, 600 Akureyri 

Ljósgjafinn ehf. 
Glerárgötu 32, 600 Akureyri

Norðurland - Húsavík

Hljóðverk ehf.
Stórhóli 33, 640 Húsavík

Norðurland vestra

Tengill ehf.
Hesteyri 2, 550 Sauðárkrókur

Samskipti

Samfélagsmiðlar

Facebook

LinkedIn

Merki Mílu

PNG fyrir prentun

EPS fyrir prentun

PNG fyrir skjái

EPS fyrir skjái


Tengiliður við fjölmiðla

Sigurrós Jónsdóttir