Ljósleiðaravæðingu Fjarðabyggðar að ljúka

Öflugri fjarskiptainnviðir fyrir heimili og atvinnulíf
Ljósleiðaravæðing Mílu í sex þéttbýliskjörnum Fjarðabyggðar er nú langt komin og sér fyrir endann á umfangsmiklum innviðaframkvæmdum. Verkefnið nær til Reyðarfjarðar, Fáskrúðsfjarðar, Neskaupstaðar, Eskifjarðar, Breiðdalsvíkur og Stöðvarfjarðar og styrkir fjarskiptainnviði á Austurlandi til framtíðar.
Verkefnið hefur verið unnið í nánu samstarfi Mílu og Fjarðabyggðar og hafa framkvæmdir gengið vel. Þegar verkefnið hófst var Fjarðabyggð það sveitarfélag þar sem flest heimili voru ótengd samkvæmt kortlagningu vegna átaks um ljósleiðaravæðingu þéttbýlis. Alls voru þá um 2.000 staðföng í sveitarfélaginu án ljósleiðaratengingar.
„Þetta er stór áfangi, ekki aðeins fyrir Mílu heldur fyrst og fremst fyrir íbúa og atvinnulíf í Fjarðabyggð. Öflug fjarskipti eru orðin jafn mikilvægur hluti grunninnviða samfélagsins og vegir og rafmagn. Með þessari uppbyggingu erum við að tryggja að heimili og fyrirtæki á svæðinu hafi aðgang að fjarskiptainnviðum sem geta mætt þörfum þeirra til framtíðar,“ segir Erik Figueras Torras, forstjóri Mílu.
Frá rúmlega þúsund ótengdum heimilum að ljósleiðaravæddu sveitarfélagi
Ljósleiðaravæðingin hefur verið unnin í áföngum. Fáskrúðsfjörður, Stöðvarfjörður, Breiðdalsvík og Neskaupstaður voru meðal þeirra staða þar sem ráðist var í umfangsmiklar framkvæmdir í fyrri áföngum verkefnisins. Í ár hefur áherslan verið á Eskifjörð og Reyðarfjörð, þar sem framkvæmdir hófust í vor og ná til u.þ.b. 500 staðfanga.
Míla hefur jafnframt á undanförnum fimm árum unnið markvisst að frekari uppbyggingu fjarskiptainnviða í Fjarðabyggð. Tengd hafa verið heimili og fyrirtæki í sex þéttbýliskjörnum, á Mjóafirði og í dreifbýlum Fjarðabyggðar.
Í sumar var meðal annars lokið við uppsetningu farsímasendis á Norðfjarðarvita við Neskaupstað, sem bætir farsímaþjónustu og dekkun á svæðinu. Þá vinnur Míla að undirbúningi nýrra farsímastaða á Breiðdalsvík og á Stöðvarfirði.
„Samstarfið og móttökurnar hafa skipt miklu máli“
Framkvæmdir af þessari stærðargráðu kalla óhjákvæmilega á rask, meðal annars vegna jarðvinnu við heimili og götur. Samstarf við sveitarfélagið og íbúa hefur hins vegar gengið afar vel og segir Erik það hafa átt stóran þátt í hversu vel verkefnið hefur gengið.
„Við höfum fundið fyrir mikilli jákvæðni og góðu samstarfi í Fjarðabyggð. Okkur hefur verið einstaklega vel tekið af bæði sveitarfélaginu og íbúum og það skiptir miklu máli þegar ráðist er í framkvæmdir af þessari stærðargráðu. Við viljum sérstaklega þakka íbúum fyrir þolinmæðina og gott samstarf á framkvæmdatímanum,“ segir Erik.
Koparkerfinu lokað árið 2027
Með ljósleiðaravæðingunni er jafnframt komið að næsta skrefi í endurnýjun fjarskiptainnviða á svæðinu. Áætlað er að loka koparkerfi Mílu í Fjarðabyggð í síðasta lagi 1. maí 2027.
Íbúar og fyrirtæki sem enn nýta tengingu um koparkerfið eru því hvött til að hafa tímanlega samband við sitt fjarskiptafélag og panta þjónustu um ljósleiðara.
Ljósleiðaravæðingin skapar grundvöll fyrir sífellt meiri gagnaflutning og fjölgun nettengdra tækja og þjónustu. Öflug og áreiðanleg nettenging styður meðal annars við atvinnustarfsemi, fjarvinnu, menntun og stafræna þjónustu og styrkir þannig búsetuskilyrði í sveitarfélaginu til framtíðar.