Beint í efni

Ísland framúrskarandi í nethraða

21. ágúst 2026

Fulltrúar ellefu evrópskra fjarskiptainnviðafyrirtækja komu saman á Íslandi í sumar á ráðstefnu EWD (European Wholesalers Discussions) og deildu þekkingu sinni á rekstri ljósleiðarakerfa og grunnkerfa farsímaneta. Auk Mílu tóku þátt Cyta frá Kýpur, Telenor frá Noregi, Telefonica frá Spáni, Austria Telecom frá Austurríki, Deutsche Telekom frá Þýskalandi, Slovak Telekom frá Slóvakíu, Orange frá Frakklandi, T-Mobile frá Tékklandi, Portugal Telecom frá Portúgal og Tusass (áður Tele Greenland) frá Grænlandi. Míla hefur verið þátttakandi í EWD um árabil, sótt þar þekkingu til leiðandi fjarskiptafyrirtækja í Evrópu og tekið þátt í samtali um framtíð fjarskiptainnviða í álfunni. Þetta er í fyrsta sinn sem ráðstefnan er haldin á Íslandi.

Ráðstefnugestir EWD 2026 á Íslandi.
Ráðstefnugestir EWD 2026 á Íslandi.

Háhraðanet er ein grunnstoða samfélaga

Öll fyrirtækin eiga það sameiginlegt að hafa um áratugaskeið komið að uppbyggingu grunninnviða í sínum löndum. Þau gegna lykilhlutverki í stafrænum hagkerfum sinna samfélaga, stuðla að auknum lífsgæðum, efla samkeppnishæfni fyrirtækja og styrkja seiglu og öryggi samfélagsins í heild.

Síðasta áratug hefur áherslan verið á að koma upp ljósleiðaratengingum sem víðast og sum löndin eru komin svo langt að þau hafa hafið útfösun á koparnettengingum og eitt þeirra hefur þegar lokið henni. Míla er langt á veg komin í þessu ferli og eru einungis um fimm þúsund koparnettengingar enn í notkun. Meiri nethraði og aukið aðgengi að háhraðaneti spilar stórt hlutverk í lífsgæðum og eykur samkeppnishæfni þjóða.

Aðstæður eru þó mismunandi eftir löndum. Í Portúgal hefur til að mynda gætt nokkurrar tregðu við yfirfærsluna af kopar yfir á ljósleiðara, þrátt fyrir að ljósleiðari sé forsenda næstu kynslóðar háhraðaþjónustu, þar á meðal 10x-tenginga.  Fyrir ríki sem vilja viðhalda samkeppnishæfni og hagsæld til framtíðar skipta slíkir innviðir sköpum. Tafir á útfösun eldri koparinnviða geta því hægt á stafrænni framþróun og dregið úr möguleikum samfélagsins til að nýta nýja tækni til fulls.

10x tengingar langt komnar á Íslandi

Nettengingar með hraða umfram einn gígabita á sekúndu hafa verið að breiða úr sér um víða veröld og Íslandi er þar í fararbroddi. Fyrstu nettengingar til heimila með fjölgígabitahraða fóru í sölu á Íslandi árið 2023 og hefur heimilum sem eiga kost á þeim hraða fjölgað jafnt og þétt síðan þá. Á ráðstefnunni fékk Míla það staðfest að Ísland er lengst komið í framboði á 10x tengingum í hópi þátttakenda. Til að mynda er hægt að bjóða hraða umfram einn gígabita á 94% af ljósleiðarakerfi Mílu. Míla heldur áfram að auka útbreiðslu þjónustunnar um allt land.

Þróun á nethraða innan netkerfa Mílu og útfösun á kopar
Þróun á nethraða innan netkerfa Mílu og útfösun á kopar

Stofnnet á Grænlandi horfir til himins

Framfarir í gervihnattafjarskiptum hafa gert gervihnattasambönd að talsvert betri kosti fyrir stofnnet þar sem ekki er hægt að leggja ljósleiðara vegna aðstæðna eða mikils kostnaðar.  Tusass hefur á síðustu árum nýtt gervihnattalausnir til að koma á fjarskiptasambandi við mjög lítil þorp þar sem getur verið ómögulegt að leggja ljósleiðara.  Fyrirtækið hefur komið sér upp samböndum um gervihnetti og nýtir sambland af GEO- og LEO-gervihnöttum sem eru í mismunandi hæð frá jörðu og hafa þau áhuga á MEO-sambandi. GEO-samband veitir mikla bandvídd, mikla dekkun en háan svartíma, LEO-samband veitir minni bandvídd, minni dekkun en lágan svartíma og MEO-samband situr mitt á milli þeirra. Fjögur landsvæði reiða sig einungis á gervihnattasamband á Grænlandi: Qaanaaq, Savissivik, Ittoqqortoormiit og Tasiilaq.

Grunnstöð Tusass fyrir OneWeb gervihnattasamband í Nuuk.
Grunnstöð Tusass fyrir OneWeb gervihnattasamband í Nuuk.

Samnýting ljósleiðara víða möguleg

Slovak Telekom fór yfir það hvernig ljósleiðaraveitur þar í landi hafa náð góðu samkomulagi um samnýtingu á ljósleiðara. Þar hafa þónokkrir eigendur  ljósleiðarakerfa samið um að lágmarka rask fyrir neytendur og deila aðgangi að ljósleiðarainnviðum sín á milli.

Orange er með umfangsmikla starfsemi, sérstaklega í Evrópu og Afríku. Félagið hefur byggt upp mörg fjarskiptakerfi sjálft eða í samstarfi við önnur fjarskiptafélög þar sem ljósleiðaraheimtaugar eru samnýttar. Þannig hefur Orange nú þegar aðgang að ljósleiðara til um 57 milljóna heimila í þessu heimsálfum.