Beint í efni

Mílu-lopapeysan lítur dagsins ljós

5. júní 2026

Fyrsta Mílu-lopapeysan hefur litið dagsins ljós og afhenti hún Tinna Ósk honum Erik forstjóra fyrsta eintak 🧶

Tinna og Erik í nýju lopapeysunni

Peysan er í réttum litum og fylgir auðvitað hönnunarstaðli Mílu. Erik forstjóri var fljótur að smella sér í peysuna og fór strax í ljósmyndatöku hjá Atla markaðsstjóra.

Erik í Mílu lopapeysunni
Rúrik í lopapeysu - mynd er eign Íslandsbanka

Þeir fengu innblástur af nýlegri markaðsherferð Íslandsbanka þar sem fótboltamaðurinn Rúrik fékk að njóta sín *úti* í íslenskri náttúru í Íslandsbanka-lopapeysu (sem eiga þessa ljósmynd hægra megin).

Lengi lifi íslenski lopinn!

//Ljósmyndinni af Erik hefur verið breytt með gervigreind með leyfi ljósmyndara og módels.

Hér er að finna uppskriftina að lopapeysunni.