Beint í efni

Með sjálfbærni hratt til framtíðar

5. maí 2026

Öruggir fjarskiptainnviðir eru lykilþáttur í velferð og búsetugæðum landsmanna og grundvöllur að fjölbreyttri og öflugri atvinnustarfsemi.
Sjálfbærni er þar af leiðandi órjúfanlegur þáttur í fjarskiptastarfsemi og liður í því að Míla sinni hlutverki sínu til framtíðar með ábyrgum og öruggum hætti.
Í sjálfbærniskýrslu Mílu koma fram helstu áherslur, aðgerðir og framvinda mála á sviði sjálfbærni árið 2025. Auk þess er greint frá langtímamarkmiðum ásamt ýmsum áhugaverðum verkefnum. Má þar m.a. nefna:

  • Stöðvun síkeyrandi dísilstöðva við rekstur fjarskiptainnviða
  • Bætt hlutfall umhverfisvænni ökutækja í bílaflota
  • Hringrásarhagkerfi og framhaldslíf tækjahúsa
  • Launað leyfi starfsfólks mánuði fyrir barnsburð
  • Fræðsla Mílu um hlutverk og mikilvægi fjarskiptainnviða

Skýrslan er hnitmiðuð og auðlesin og sýnir skýra mynd af áherslum og verkefnum ársins. Í skýrslunni er sjálfbærni sett fram á aðgengilegan og myndrænan hátt, með áherslu á raunveruleg verkefni og mælanlega framvindu.

Skoða skýrslu