Vilt þú gæta að öryggi fjarskipta í sumar?
Við leitum að vöktunarfulltrúa í sumarstarf í stjórnstöð okkar, sem hefur áhuga á fjarskiptum eða tækni. Starfið felst í eftirliti, fyrsta stigs bilanagreiningum og upplýsingamiðlun á stöðu fjarskiptakerfa í eigu Mílu og annarra aðila. Stjórnstöð Mílu er opin allan sólarhringinn og tryggir öryggi fjarskipta.
Um er að ræða vaktavinnu þar sem unnið er á dag-, kvöld- og næturvöktum, á tímabilinu maí - ágúst.
Umsóknarfrestur frá: 10. febrúar 2026
Umsóknarfrestur til: 2. mars 2026
Hafa samband: mannaudur@mila.is