Beint í efni

Sérfræðingur í stofnkerfum


Hefurðu áhuga á fjarskiptum og gaman af því að finna út hvernig hlutirnir virka? Við leitum að tæknisinnuðum liðsfélaga í rekstur og uppbyggingu stofnkerfa Mílu.

Í starfinu færðu að vinna með fjarskiptabúnað, greina bilanir og koma nýjum tengingum í gang. Verkefnin eru fjölbreytt og henta þér sem finnst gaman að leysa tæknilegar áskoranir, vinna með öðrum og læra nýja hluti.


Helstu verkefni og ábyrgð

  • Daglegur rekstur og viðhald stofnnets Mílu
  • Bilanagreining og viðgerðir
  • Uppsetning, gangsetning og prófanir á nýjum búnaði og samböndum
  • Þátttaka í viðhaldi og rekstri innri kerfa
  • Þátttaka í uppbyggingu og þróun fjarskiptainnviða


Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun í verkfræði, tæknifræði, tölvunarfræði eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi
  • Áhugi á tækni og vilji til að læra og þróast í starfi
  • Þekking á IP-netkerfum, Ethernet og ljósleiðaratækni er kostur
  • Þekking á fjarskiptaumhverfi og reynsla af fjarskiptabúnaði og uppsetningu sambanda er kostur
  • Sjálfstæð, skipulögð og öguð vinnubrögð
  • Góð samskiptahæfni
  • Hæfni til að greina vandamál og vinna yfirvegað undir álagi
  • Hæfni til að miðla tæknilegum upplýsingum á skýran hátt
  • Góð íslensku- og enskukunnátta


Í anda jafnréttisstefnu Mílu hvetjum við öll áhugasöm til að sækja um, óháð kyni. Nánari upplýsingar um starfið veitir mannauðsdeild á mannaudur@mila.is

Umsóknarfrestur frá: 2. nóvember 2026
Umsóknarfrestur til: 16. nóvember 2026
Hafa samband: mannaudur@mila.is

Sækja um