Beint í efni

Strengslit á ljósleiðarastreng í Mjóafirði

4. september 2026

Upp er komin bilun í Mjóafirði sem hefur áhrif á farsíma- og netþjónustu í Mjóafirði. Líklega er um að ræða ljósleiðaraslit en unnið er að greiningu og viðgerð.

Uppfært 11:07 - Samstarfsaðilar eru komnir að tengibrunni og eru að meta aðstæður. Enn er óljóst hvenær viðgerð lýkur en lþessi tilkynning verður uppfærð þegar nánari upplýsingar liggja fyrir.

Komið hefur í ljós að skriða hefur skemmt og slitið strenginn á stórum kafla, bæði þar sem hann liggur niður kletta og í skriðum fyrir neðan.  Líklegt er að koma þurfi fyrir nýjum streng á löngum kafla og því ekki hægt að segja til um viðgerðartíma að svo stöddu. Upplýsingar verða uppfærar þegar þær liggja fyrir.