Vatnsaflsvirkjun gangsett fyrir Gestreiðarstaðarháls

Míla og Neyðarlínan hafa nú sett í gang vatnsaflsvirkjun við Langadalsá í landi Möðrudals. Virkjunin er í umsjón Neyðarlínunnar og mun framleiða rafmagn fyrir fjarskiptastöð Mílu á Gestreiðarstaðarhálsi. Virkjunin leysir af dísilknúna rafstöð sem er næstsíðasta stöð Mílu af þeim toga. Undirbúningur framkvæmdanna hófst árið 2021 en framkvæmdir drógust um fjögur ár vegna flókinna ferla leyfisveitinga.
Virkjunin framleiðir allt að 50 kílóvött (kW) en af þeim nýtir Míla nú aðeins fjögur. Það er því næg umframorka til að nýta fyrir framtíðarverkefni. Kolefnisspor fjarskiptastöðvarinnar minnkar talsvert við þessa breytingu en gamla rafstöðin brenndi um 12.000 lítrum af dísilolíu á ári, sem jafnast á við átta jeppa sem keyra um 15.000 kílómetra á ári hver.

Virkjunin séð úr lofti.
Markmið að auka vægi umhverfisvænna orkugjafa við rekstur fjarskiptainnviða
Bæði Míla og Neyðarlínan reka fjarskiptasenda um land allt í þeim tilgangi að tryggja fullnægjandi fjarskiptaöryggi á þessum stöðum. Á undanförnum árum hafa báðir aðilar unnið að því að skipta yfir í umhverfisvæna og sjálfbæra orkugjafa á þeim fjarskiptastöðum sem ganga eingöngu fyrir rafmagni knúnu af dísilolíu eða svokölluðum síkeyrslustöðvum.
Erik Figueras Torras, forstjóri Mílu, segir að samstarfið við Neyðarlínuna hafi gengið afar vel enda eru báðir aðilar á markvissri, grænni vegferð: „Verkefnið endurspeglar skýra sýn Mílu að reka fjarskiptainnviði með umhverfisvernd og sjálfbærni að leiðarljósi. Jafnframt að tryggja nauðsynlegt fjarskiptaöryggi á þessum stöðum. Á undanförnum árum hefur Míla unnið markvisst að því að fækka stöðum sem ganga fyrir síkeyrslu og er fjarskiptastaðurinn við Gestreiðarstaðarháls sá fjórði í röðinni. Aðeins er ein slík stöð eftir, Slórfell í Möðrudal, og þegar er í undirbúningi að skipta þar yfir í umhverfisvænni orkugjafa.“
Jón Svanberg Hjartarson, framkvæmdastjóri hjá Neyðarlínunni, tekur undir orð Eriks og segir mikinn létti að verkefninu sé nú loksins lokið en að leyfisferlið hafi verið flókið og staðið yfir í fjögur ár. „Neyðarlínan hefur staðið í markvissum grænum aðgerðum í samræmi við umhverfisstefnu félagsins í vel á 15 ár með góðum árangri og gott að geta unnið að umhverfisvænni fjarskiptum með Mílu.“