Beint í efni

Míla styður við uppgang rafíþrótta á Íslandi

28. maí 2026

Míla var stoltur styrktaraðili verðlaunahátíðarinnar Rafíþróttamaður ársins 2026 þar sem fremsta rafíþróttafólk landsins var heiðrað fyrir framúrskarandi árangur og framlag sitt til íslensks rafíþróttasamfélags. Viðburðurinn fór fram í hátíðlegu umhverfi hjá Next Level Gaming rafíþróttamiðstöðinni og vakti mikla athygli innan samfélagsins. Þetta var í fyrsta sinn sem verðlaunin voru veitt.

Sem fyrirtæki sem byggir upp og rekur mikilvæga fjarskiptainnviði landsins leggur Míla ríka áherslu á að styðja við þróun stafræns samfélags og skapa öflugt umhverfi fyrir nýsköpun, tækni og tengingar um allt land. Rafíþróttir eru ört vaxandi vettvangur þar sem tæknileg geta, liðsheild og agi fara saman — gildi sem falla vel að framtíðarsýn Mílu.

„Við hjá Mílu erum afar ánægð að taka þátt í að styðja við rafíþróttasamfélagið á Íslandi. Öflugir og áreiðanlegir innviðir skipta miklu máli fyrir þróun rafíþrótta og við sjáum spennandi framtíð í þessum geira,“ sagði Ingvar Bjarnason, framkvæmdastjóri sölu- og þjónustusviðs Mílu, sem veitti verðlaunin Rafíþróttakarl ársins.

Á verðlaunahátíðinni voru veitt verðlaun í fjölmörgum flokkum og framlagi einstaklinga, liða og samfélagsins í heild fagnað. Mikill metnaður og fagmennska einkenndi bæði skipulag viðburðarins og þá keppendur sem voru heiðraðir.

Rafíþróttafólk ársins 2026

Veitt voru verðlaun fyrir rafíþróttakonu, rafíþróttakarl, björtustu vonina og rafíþróttamann ársins fyrir árið 2026.

Titilinn Rafíþróttakona ársins 2026 hlaut María Lísa Thomasdóttir, sem keppir undir nafninu „Maeja“. María lék stórt hlutverk sem midlaner í liði Fenris í League of Legends síðasta haust, sigraði League of Legends mótið á Skjálfta í september og endaði í öðru sæti í úrslitakeppni KIA deildarinnar í vor.

Titilinn Rafíþróttakarl ársins 2026 hlaut Antonio Kristófer Salvador, sem keppir undir nafninu „Tony“. Antonio átti afar sterkt tímabil í Counter-Strike og sigraði öll helstu mót ársins með liðinu Dusty, þar á meðal haust- og vormót Ljósleiðaradeildarinnar og Stórmeistaramót Ljósleiðarans í lok maí.

Titilinn Bjartasta vonin 2026 hlaut Brimir Leó Bjarnason, sem keppir undir nafninu „FH VELTRIC!“. Brimir er ungur og efnilegur keppandi í Fortnite og hefur sýnt fram á framúrskarandi árangur, bæði í keppni við jafnaldra og gegn reyndari spilurum. Hann er þegar farinn að byggja upp sterkt orðspor innan greinarinnar.

Titilinn Rafíþróttamaður ársins 2026 hlaut Finnbjörn Flosi Jónasson, sem keppir undir nafninu „Finnsi“. Finnbjörn hefur átt afar sterkt tímabil með liðinu Virtus.Pro í Marvel Rivals. Liðið hefur unnið fjölda sigra á árinu og í nóvember tryggði það sér sæti í úrslitum á heimsmeistaramótinu í greininni þar sem Virtus.Pro hafði betur gegn liðinu NAVI með 4–1 sigri. Með þessum árangri skrifaði Finnbjörn sig í sögubækurnar sem fyrsti íslenski heimsmeistarinn í rafíþróttum.

Geit ársins 2026

Titilinn Geit ársins 2026 hlutu sex leikmenn sem hafa skarað fram úr í sinni keppnisgrein innanlands og verið áberandi á mótum á liðnu tímabili.

Hér fyrir neðan má sjá Geitur ársins 2026:

Páll Minh Phuong Jakobsson „Legions“ — League of Legends
Antonio Kristófer Salvador „Tony“ — Counter‑Strike
Jon Ingvi Seljeseth „Ingmundur“ — Dota 2
Georg Rúnar Ingimarsson „Georg“ — Overwatch
Bjarni Þór Hólmsteinsson „Bjdn!“ — Rocket League
Adam Kelvin Krus „Wish XD“ — Fortnite

Míla óskar öllum verðlaunahöfum og tilnefndum innilega til hamingju með árangurinn og hlakkar til að fylgjast áfram með uppbyggingu og vexti rafíþrótta á Íslandi á komandi árum.