Nær öll heimili í Vestmannaeyjum komin með ljósleiðara

Míla gekk nýverið frá kaupum á fjarskiptainnviðum Eyglóar í Vestmannaeyjum. Kaupin fela í sér sameiningu ljósleiðarakerfa Mílu og Eyglóar á svæðinu.
- Heildstætt og opið ljósleiðarakerfi styrkir þjónustu til allra fjarskiptafyrirtækja
- Míla hefur lokið við ljósleiðaravæðingu nær allra heimila í Vestmannaeyjum
- Nú er uppsetning nettenginga heimilum að kostnaðarlausu og innifalin við pöntun
Uppsetning heimila nú innifalin
„Auk þess að þjóna öllum fjarskiptafyrirtækjum til jafns bjóðum við upp á innifalda uppsetningu við tengingu, svo næröll heimili ættu nú að geta haft greiðan aðgang að hröðum, öruggum og áreiðanlegum fjarskiptum,“ segir Erik Figueras Torres, forstjóri Mílu. Hann segir fyrirtækið nú hafa lokið við að ljósleiðaravæða þá hluta Vestmannaeyja sem áður voru ótengdir kerfi Eyglóar og er ljósleiðarauppbyggingu á svæðinu því að mestu lokið.
Sameining kerfanna skapar opið og heildstætt ljósleiðarakerfi, sem eykur skilvirkni í rekstri, bætir þjónustu og tryggir jafnan aðgang fyrir alla þjónustuveitendur. „Við erum stolt af því að sameina þessi tvö kerfi og skapa þannig áreiðanlegt og opið ljósleiðaranet fyrir Vestmannaeyjar,“ segir Erik.
Mikilvæg grunnstoð í rekstri Laxeyjar
Sameinað net undir rekstri Mílu einfaldar ferla, eykur stöðugleika og framtíðarþol innviðanna. Það þjónar jafnt heimilum, fyrirtækjum og opinberum aðilum og býr betur í haginn fyrir aukna gagnaflutninga og nýja stafræna þjónustu. „Fyrir okkur hjá Laxey þurfa stafrænir innviðir að vera sérlega traustir, stöðugir og færir um takast á við þá flóknu ferla sem sem skila okkur hágæða matvöru á markaði“ segir Óskar Jósúason, samskiptastjóri Laxey í Vestmannaeyjum.
Fjármagn losað til samfélagsverkefna
Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyja er ánægð með söluna: ,,Með henni drögum við úr þörf sveitarfélagsins fyrir frekari fjárfestingar í fjarskiptainnviðum en eins og við þekkjum öll þróast tæknin ört. Á sama tíma losum við fjármagn til annarra mikilvægra samfélagsverkefna – svo sem fjárfestinga sem bæta grunnþjónustu við íbúa og eiga betur heima í verkahring sveitarfélagsins en rekstur fjarskiptainnviða".