Beint í efni

Míla og Samkeppniseftirlitið gera nýja sátt og Míla greiðir 200 milljón króna sekt

19. mars 2026

Míla og Samkeppniseftirlitið (SKE) hafa gert með sér nýja sátt sem felur í sér endurskoðun á sátt frá árinu 2022, sem gerð var í kjölfar sölu Mílu til innviðasjóðs undir stjórn Ardian France SA. Við söluna árið 2022 voru eignatengsl milli Mílu og Símans rofin. Á sama tíma var gerður langtíma heildsölusamningur milli Mílu og Símans.

Míla óskar eftir endurskoðun á sátt

Í mars 2024 óskaði Míla eftir endurskoðun sáttarinnar í ljósi breyttra markaðsaðstæðna og aukinnar samkeppni. Skömmu áður hafði Fjarskiptastofa tilkynnt að kvöðum yrði aflétt af Mílu á tveimur mikilvægum fjarskiptamörkuðum á svæði sem nær til yfir 80% landsmanna því þar væri virk samkeppni. Taldi Míla mikilvægt að sáttin við SKE yrði aðlöguð í samræmi við þessa niðurstöðu því ákveðin ákvæði hennar takmörkuðu getu Mílu til að keppa með eðlilegum hætti.

Kvörtun samkeppnisaðila og rannsókn SKE

Í desember 2024 barst SKE kvörtun frá samkeppnisaðila Mílu þar sem því var haldið fram að Míla hefði brotið gegn samkeppnislögum og sáttinni frá 2022. Í kjölfarið hóf SKE rannsókn og tilkynnti Mílu að ekki væri unnt að taka afstöðu til breytinga á sáttinni fyrr en leitt væri í ljós hvort grunur um ætluð brot Mílu ætti við rök að styðjast. Míla lagði fram ítarleg svör og SKE aflaði jafnframt upplýsinga frá Fjarskiptastofu og öðrum hagaðilum á fjarskiptamarkaði.

Sáttaviðræður og umfang málsins þrengt

Í september 2025 hófust sáttaviðræður milli Mílu og SKE. Niðurstaða rannsóknar SKE og viðræðna við Mílu leiddu til breytinga á sáttinni frá 2022 í formi tilslakana gagnvart Mílu til samræmis við breyttar aðstæður á samkeppnismarkaði.

Samhliða viðurkenndi Míla að tiltekin samskipti við Símann, yfir afmarkað tímabil, hefðu getað haft áhrif á hvata Símans til að kaupa þjónustu frá samkeppnisaðilum Mílu umfram það sem leiddi af samningsbundinni kaupskyldu samkvæmt heildsölusamningi Mílu og Símans. Féllst Míla á að greiða 200 milljónir króna í stjórnvaldssekt vegna þessa.  Aðrar athugasemdir samkeppnisaðila þóttu ekki gefa tilefni til frekari rannsóknar eftir að sjónarmið og gögn Mílu lágu fyrir.

Aukin samkeppni staðfest – dregið úr umfangi skuldbindinga Mílu
Rannsókn SKE staðfesti einnig það sem Míla hefur lengi haldið fram – að samkeppni á fjarskiptamörkuðum hafi aukist mikið og því ekki lengur forsendur fyrir áframhaldandi óbreyttum skilyrðum á Mílu.

Míla fagnar því að málinu sé nú lokið og að fyrirtækið fái aukið svigrúm til að keppa á jafnari grundvelli við aðra heildsöluaðila á fjarskiptamarkaði. Ný sátt skapar þannig traustari grunni fyrir virkari samkeppni, til hagsbóta fyrir bæði fyrirtæki og neytendur.

Nánari upplýsingar veitir
Inga Helga Halldórudóttir, yfirlögfræðingur Mílu.
Sími: 899 8806