Beint í efni

Meira ljós tilnefnt til Lúðurs 📣

26. febrúar 2026

Míla og Pipar/TBWA hafa verið tilnefnd til Lúðurs fyrir auglýsinguna Meira ljós í flokknum Veggspjöld og skilti. Lúðurinn eru verðlaun sem veita frumlegum, skapandi og snjöllum hugmyndum, sem eru útfærðar á framúrskarandi hátt, viðurkenningu. 

Meira ljós auglýsingin skeytti saman sólstöðum og ljósleiðara á skemmtilegan máta. Eftir 21. desember fór dagsljós að lengja eftir dimma tíma og var talið niður í meira ljós á auglýsingaskiltum víðsvegar um landið. Míla er einmitt í þeim bransa að byggja upp ljósleiðara um allt land. Hraður og stöðugur ljósleiðari er ein forsenda meiri lífsgæða.

Ásamt okkur eru þessar frábæru auglýsingar tilnefndar:

  • Sæt kveðja – Nói Síríus – Brandenburg
  • KitKat klukkan – Danól – ENNEMM
  • Ég elska Cheerios – Nathan – ENNEMM
  • Já. Þú kemst næstum hvert sem er. – Icelandair – Hvíta húsið

Við þökkum tilnefningarnefnd kærlega fyrir að hugsa til okkar hjá Mílu - og Pipar/TBWA fyrir frábært samstarf 👏