Ljóstengivélar fá framhaldslíf í Raftækniskólanum
20. apríl 2026

Míla var að uppfæra sinn búnað fyrir ljósleiðarasplæsingar til að auka afköst og gæði. Eldri búnaðurinn virkar fínt og það hefði verið synd að henda honum. Jónas og Jón Grétar fóru því af stað og heyrðu í Raftækniskólanum. Þar tóku Einar Gunnar og Guðrún Ýrr vel í hugmyndina að gefa búnaðinum gott framhaldslíf við námið þar. Hér á myndinni sjást Einar og Guðrún taka við búnaðinum frá starfsfólki Mílu: Örnu Fjólu, Jónasi og Jóni Grétari. Við óskum Raftækniskólanum til hamingju með vélarnar og vonum að þær nýtist vel.