Beint í efni

Fjölskylduvænn vinnustaður

16. desember 2025
Starfsmaður Mílu í fæðingarleyfi

Launað leyfi mánuði fyrir barnsburð og uppsöfnun orlofsréttinda

Míla leggur mikið upp úr því að vera fjölskylduvænn vinnustaður og framvegis fær allt starfsfólk sem gengur með barn launað leyfi mánuði fyrir settan fæðingardag.

„Við setjum heilsu og velferð starfsfólks okkar í forgang og það á einnig við þegar kemur að barnseignum. Með þessari breytingu viljum við styðja enn betur við starfsfólkið okkar á þessum tímamótum í þeirra lífi“ Ásta tekur fram að fjarvera á þessu tímabili hafi ekki áhrif á veikindarétt viðkomandi.

Orlof safnast í fæðingarorlofi

Samhliða þessum breytingum hefur Míla einnig tekið upp breytingar er varðar orlofsrétt en starfsfólk safnar nú orlofi meðan það er í fæðingarorlofi, í samræmi við þann hluta fæðingarorlofsins sem það tekur. Ávinnsla orlofsins er þó aldrei hærri en lögbundinn hámarksréttur fæðingarorlofs sem miðast við sex mánuði.

„Við viljum skapa umhverfi sem styður við starfsfólkið okkar með áherslu á að stuðla að jafnvægi vinnu og einkalífs,” segir Ásta en nýju úrræðin taka gildi strax og ná til alls starfsfólks sem uppfyllir skilyrðin.

Ljósmynd af Ástu Þorsteinsdóttir, mannauðsstjóriaMílu

Ásta Þorsteinsdóttir, mannauðsstjóri Mílu

Komið til móts við þarfir

Eitt af markmiðum Mílu er að vera eftirsóttur vinnustaður og stór hluti af því er að huga vel að heilsu og líðan starfsfólks. Kristín Sólveig Kormáksdóttir, verkefnastjóri hjá Mílu er í fæðingarorlofi um þessar mundir en hún var einnig ein af hvatafólki að þessum breytingum. 

Kristín Kormáksdóttir, verkefnastjóri hjá Mílu ásamt sínu nýfædda barni

Kristín Kormáksdóttir, verkefnastjóri hjá Mílu

„Þetta er mjög stórt skref og Míla er að byggja til framtíðar með því að styðja vel við starfsfólkið sitt og gera Mílu að enn fjölskylduvænni stað til að vinna á. Þá er einnig gott að vinna á stað þar sem reynt er að koma til móts við þarfir starfsfólks og að það sé vel tekið á móti uppástungum og ábendingum.“

Hvað annað gerir Míla til að efla fjölskylduvænt umhverfi?

  • Opin fjarvinnustefna þar sem kostur gefst
  • Sveigjanlegur vinnutími þar sem því er viðkomið