Beint í efni

Einföldun regluverks í brennidepli á Iðnþingi

25. mars 2026

Inga Helga yfirlögfræðingur Mílu tók þátt í pallborðsumræðum á Iðnþingi 2026, sem haldið var af Samtökum iðnaðarins í Hörpu í byrjun mars, þar sem fjallað var um einföldun regluverks og áhrif þess á atvinnulífið.

Iðnþing er einn stærsti vettvangur fyrir umræðu um stöðu og framtíð íslensks atvinnulífs og sóttu um 700 gestir þingið, auk fjölda sem fylgdist með í streymi. Meðal þátttakenda voru leiðtogar úr atvinnulífi, fulltrúar stjórnvalda og stjórnmála.

Í umræðunni var meðal annars lögð áhersla á að einföldun regluverks snúist ekki eingöngu um að fækka reglum, heldur um að tryggja að þær séu skilvirkar í framkvæmd og styðji við verðmætasköpun, samkeppnishæfni og fjárfestingu.

Fyrir fjarskiptainnviði, sem eru lykilinnviðir í nútímasamfélagi, er fyrirsjáanlegt og skilvirkt regluumhverfi sérstaklega mikilvægt til að styðja við áframhaldandi uppbyggingu og fjárfestingu.

Þátttaka Mílu í umræðunni endurspeglar mikilvægi þess að sjónarmið fjarskiptainnviða séu hluti af stefnumótun um regluverk og samkeppnishæfni Íslands.

Hér fyrir neðan má sjá myndband af umræðu Ingu Helgu á Iðnþinginu 2026.