Beint í efni

5G og 6G brúin yfir í nýja kynslóð fjarskipta

30. apríl 2026

Hingað til hafa fjarskipti snúist að miklu leyti um aukinn gagnahraða en nú horfir tæknin í nýjar áttir. Á næstu árum mun fjarskiptaþróunin mótast í ríkara mæli af nákvæmari, sveigjanlegri og greindari netum, en þetta var meðal þess sem kom skýrt fram á Mobile World Congress ráðstefnunni í Barselóna fyrir skömmu. Þar voru gervigreind og næstu skref í þróun fjarskiptatækni í lykilhlutverkum.

100 sinnum hraðara upphal

5G Advanced (5G-A) er næsta skrefið í þróun fjarskiptatækni. Líta má á hana sem brúna milli 5G og 6G sem mun móta næstu skref í þjónustu og uppbyggingu á næstu árum.

Í 5G-A tækni er áherslan ekki bara á meiri gagnahraða heldur snýr þróunin ekki síður að aukinni nákvæmni, meira og betra upphal, stöðugri tengingu, sveigjanlegri þjónustu og bættri orkunýtingu í bæði tækjum og farnetkerfum. Sú þróun mun hafa víðtæk áhrif, bæði fyrir einstaklinga og fyrirtæki.

Beint myndstreymi, skýjalausnir, fjarfundir og gervigreindarforrit kalla ekki aðeins á hraðara niðurhal heldur öflugt og stöðugt upphal. Öflugt upphal verður sífellt mikilvægara eftir því sem nýtt og breiðara þjónustuframboð reiðir sig á rauntímagögn úr tækjum notenda. Í 5G-A verður upphal allt að 100 sinnum hraðara (á ensku er talað um Giga-uplink) sem er lykillinn að því að tæknin geti nýtt sér gervigreind að fullu, með sjálfvirkri upphal og vinnslu gagna í rauntíma.

Nákvæmari staðsetning og samspil við gervihnetti

Önnur stór breyting í 5G-A er aukin staðsetningarnákvæmni í farnetum, með allt að 10 cm nákvæmni innanhúss. Með henni geta netin gegnt stærra hlutverki í umhverfi þar sem nákvæm staðsetning skiptir miklu máli, svo sem á sjúkrahúsum, flugvöllum, verksmiðjum og í neyðarþjónustu. Þar með verður netið ekki bara tenging, heldur einnig miðlægur hluti af staðsetningar- og rekstrarinnviðum.

Með innleiðingu á 5G-A er jarðvegurinn einnig undirbúinn fyrir aukna samþættingu við gervihnattasamskipti, en tæknin getur bæði tengst gervihnöttum og átt í beinum samskiptum við önnur tæki (e. device-to-device eða D2D). Í framtíðinni mun tenging því ekki eingöngu byggja á hefðbundnum farsímamöstrum og ljósleiðurum, heldur einnig á samspili jarðbundinna neta og gervihnatta. Það getur skipt sérstaklega miklu máli á afskekktum svæðum eða þar sem þörf er á auknu rekstraröryggi.

Kerfissneiðing og betri orkunýting

Í 5G-A er svokölluð kerfissneiðing (e. network slicing) kynnt til leiks, þar sem netinu er skipt í „sneiðar“ svo sama netið geti þjónað ólíkum þörfum samtímis. Þannig er hægt að sérsníða hluta netsins fyrir mismunandi verkþætti, til dæmis fyrir neyðarþjónustu, fjölmiðla, iðnaðarkerfi eða tengingar við tækjabúnað á borð við öryggiskerfi og snjalltæki af ýmsum toga (e. Internet of Things eða IoT). Þetta gerir fjarskiptafyrirtækjum kleift að styðja betur við fjölbreytta þjónustu með mismunandi kröfur um öryggi, svartíma og áreiðanleika.

Samhliða þessu verður orkunýting sífellt mikilvægari. Eftir því sem netin stækka og gagnamagn eykst skiptir meira máli að geta stýrt orkunotkun af meiri nákvæmni. Gervigreindin getur þannig slökkt á hlutum netsins þegar álagið er lítið og standa vonir til að með því sé hægt að spara um 30% orku samanborið við núverandi 5G-staðla (5G NR). Þannig geta greindari net lagað rekstur sinn að raunverulegu álagi og bæði lækkað rekstrarkostnað og minnkað umhverfisfótspor.

6G framtíðarsýn

Þótt 6G sé enn nokkuð fjarri almennri notkun er undirbúningurinn þegar hafinn. Stefnt er að því að 6G verði ekki einungis hraðari útgáfa af 5G heldur ný kynslóð fjarskipta með enn meiri sjálfvirkni, nánari samþættingu við gervigreind, lægri svartíma og enn öflugri stuðning við nýja hagnýtingarmöguleika. Í dag er tæknin enn á rannsóknarstigi en áætlanir gera ráð fyrir að 6G verði komið í almenna notkun á fjórða áratugnum.

Fyrir notendur mun þetta skila sér í betri og áreiðanlegri þjónustu. Fyrir fyrirtæki og samfélagið í heild felast ný tækifæri í þessari þróun til að byggja þjónustu, rekstur og stafræna innviði á nákvæmari og sveigjanlegri fjarskiptum.

Framtíð fjarskipta snýst ekki aðeins um meiri hraða. Hún verður snjallari, nákvæmari og betur aðlöguð þeim fjölbreyttu þörfum sem stafrænt samfélag framtíðarinnar kallar á.