Stofnnet
Stofnnet Mílu er meginburðarlag Mílu og nær til allra þéttbýliskjarna landsins ásamt fjölda smærri staða úr alfaraleið. Ljósleiðarahringur Mílu er megin burðarlag stofnnetsins og tengir saman öll helstu ljósleiðaranet landsins. þar sem ljósleiðari er ekki til staðar eru stafrænar þráðlausar lausnir notaðar sem burðarlag.

Ethernet MPLS-TP þjónusta byggir á svæðaskiptingu sem skiptist upp í staði á landshring og svæði utan landshrings.
Ethernet MPLS-TP
Ethernet MPLS-TP þjónusta og gjaldskrá byggir á svæðaskiptingu, sem skiptist upp í landshring og svæði utan landshrings. Á landshring eru þrír gjaldflokkar upp að 100 km en eftir það eru verð óháð vegalengd. Utan landshrings eru fjórir gjaldflokkar upp að 85 km en eftir það eru verð áháð vegalengd.
MPLS-TP byggir á pakkaskiptri gagnaflutningsþjónustu og eru 1Gb og 10Gb Ethernet tengiskil í boði. Þá er þjónusta eins og forgangsröðun pakka, frátekin og samnýtt bandvídd og VLAN aðgreining í boði.
Ethernetþjónusta MPLS/TP hentar meðal annars sem:
- Burðarnet internets- og sjónvarpsþjónustu
- Burðarnet farsímaþjónustu, 3G, 4G/LTE og 5G
- Burðarnet öryggisfjarskipta
- Samtenging aðgangsnetsþjónustu heimila og fyrirtækja, xDSL og GPON
- Almenn leigulína
Eiginleikar vöru
- Fullkomlega frátekin og tryggð bandvídd (CIR)
- CIR bandvídd er 100% aðskilin frá annarri bandvídd
- Í boði er að samnýta umframbandvídd (EIR) með öðrum viðskiptavinum á sömu burðarleiðum
- Verð á samnýttri bandvídd (EIR) er einungis 10% af verði frátekinnar bandvíddar (CIR)
- Umframbandvídd (EIR) er einungis í boði ef keypt er frátekin bandvídd (CIR), en þó aldrei umfram CIR bandvíddina sem keypt er og að hámarki 1 Gb/s
- Mögulegt er að setja upp aðskildar leiðir sem geta varið hvor aðra
- Kerfið býr yfir mjög öflugri bilanagreiningu og stjórnun á umferð
- Samböndin eru vöktuð af kerfisvöktun Mílu allan sólarhringinn, alla daga, allan ársins hring
Hærri gagnaflutningshraði
100 Gb/s á landshring eru í boði sem framhald af verðskrá fyrir Ethernetþjónustu, þrátt fyrir að tæknilega sé ekki um sömu vöru að ræða. Um er að ræða tæknióháð, gagnsæ, samhverf Ethernetsambönd með tryggða bandvídd.
100 Gb/s á landshring „Hærri gagnaflutningshraðar“ eru einungis í boði á milli tækjarýma Mílu á eftirtöldum stöðum: Múlastöð, Breiðholt, Hvolsvöllur, Selfoss, Akureyri, Egilsstaðir.
MPLS-TP svæði og verðskrá

Opna mynd af verðskrá í nýjum glugga
Svæði á landshring
Múli Breiðholt Akranes Borgarnes Búðardalur Blönduós Sauðárkrókur Dalvík Akureyri Húsavík Egilsstaðir Reyðarfjörður Höfn Kirkjubæjarklaustur Grindavík Vík í Mýrdal Keflavík Hvolsvöllur Flugstöð Leifs Eiríkssonar Hella Verne Selfoss
Svæði utan landshring
Suðurland
Aratunga Árnes Brautarholt Eyrarbakki Flúðir Hveragerði Írafoss (Ljósafoss) Langholt Laugarás Laugarvatn Miðfell Minniborg Seyðishólar Sólheimar Torfastaðaheiði Úlfljótsvatn Bláfellsháls Vestmannaeyjar Þorlákshöfn Geysir Háafjall Stokkseyri Laugaland
Suðausturland
Hestgerði.
Reykjanes
Garður, Hafnir, Njarðvík,Sandgerði,Vogar og Svartsengi.
Austurland
Eskifjörður, Neskaupsstaður, Fáskrúðsfjörður, Stöðvarfjörður, Breiðdalsvík, Djúpivogur, Merkigil, Hafrafell, Brúarás, Seyðisfjörður og Hallormsstaður.
Norðurland Eystra
Mývatn, Breiðamýri, Stórutjarnarskóli, Björg, Lundur, Hrútey, Vopnafjörður, Bakkafjörður, Þórshöfn og Raufarhöfn.
Tröllaskagi
Varmahlíð, Hólar, Hofsós, Hegranes, Siglufjörður og Ólafsfjörður.
Norðurland - Vestra
Hnjúkar, Hvammstangi, Laugarbakki, Staður, Hvítbjarnarhóll, Ennishöfði, Hólmavík, Nauteyri, Grenjadalsfell og Skagaströnd.
Mánaðarverð á landshring
Verð er án virðisaukaskatts.
Verðskrá fyrir Ethernetþjónustu MPLS/TP
Mánaðarverð fyrir EIR (ótryggð umframbandvídd) reiknast 10% af mánaðarverði CIR (tryggð bandvídd).
*EIR ekki í boði.
Hærri gagnaflutningshraði
Aðeins í boði á milli tækjarýma Mílu á eftirtöldum stöðum: Múlastöð, Breiðholt, Hvolsvöllur, Selfoss, Akureyri og Egilsstaðir.
*100 Gb/s á landshring er tæknilega ekki sama vara og Ethernetþjónusta MPLS-TP. Um er að ræða tæknióháð, gagnsæ, samhverf Ethernetsambönd með tryggða bandvídd. EIR er ekki hluti af þessari vöru.
Verðskrá fyrir MPLS-TP sambönd Drangsnes og Grímsey
*EIR ekki í boði.
Mánaðarverð Tengiskila
Tengiskil | Mánaðarverð |
---|---|
1 Gb/s | 7.000 kr. |
10 Gb/s | 35.000 kr. |
Sync-E (Synchronous Ethernet) þjónusta á MPLS-TP tengiskilum 350 kr.
Mánaðarverð utan landshrings
Stofnverð og breytingagjald
Stofnverð fyrir nýtt samband innan og utan landshrings | 96.000 kr. |
---|---|
Breytingagjald fyrir breytingu úr leigulínu í Ethernetþjónustu | 36.000 kr. |
Mánaðarverð fyrir EIR (ótryggð umframbandvídd) reiknast 10% af mánaðarverði CIR (tryggð bandvídd).
Hraðbraut er samband sem hentar viðskiptavinum sem þurfa mjög bandvíð sambönd innan höfuðborgarsvæðisins og á völdum stöðum í nágrenni við höfuðborgarsvæðið.
Verð er óháð vegalengd og er eitt fast verð fyrir hvert samband.
Bandvídd er fullkomlega frátekin, aðskilin og tryggð, sambærilegt sambandi yfir svartan ljósleiðara.
Hver lagnaleið er sérhönnuð í samræmi við þarfir hvers viðskiptavinar með það að markmiði að hámarka rekstraröryggi. Öll sambönd og leiðir eru vaktaðar af kerfisvöktun Mílu allan sólarhringinn, alla daga, allan ársins hring.
Ásamt því að vera í boði á höfuðborgarsvæðinu eru Hraðbrautir í boði á tveimur fullkomlega aðskildum leiðum á Suðurnesjum, sem meðal annars tengja gagnaverið Verna-DC við höfuðborgarsvæðið. Báðar leiðir á milli höfuðborgarsvæðisins og Suðurnesjanna eru með merkjatöf undir 1 ms. Hraðbraut er einnig í boði fyrir gagnaver sem staðsett er á Blönduósi.

Helstu einkenni og kostir Hraðbrautar
- Bundin við höfuðborgarsvæðið og nágrenni
- Mikil bandvídd
- Verð er óháð vegalengd
- Sambærilegt sambandi yfir svartan ljósleiðara
- Háhraða samtenging á milli höfuðborgarsvæðisins og Suðurnesjanna með lága merkjatöf
- Mikið öryggi - sambandið er vaktað allan sólarhringinn, alla daga, allt árið
- Lagnaleiðir eru sérvaldar til að einfalda viðhald, auka öryggi og bæta yfirsýn
- Í boði eru 1Gb/s, 10Gb/s og 100Gb/s sambönd með Ethernet tengiskilum (portum)
- Einnig eru í boði aðrar tegundir tengiskila eins og FC, allt eftir óskum viðskiptavina
- Mögulegt er að setja upp aðskildar leiðir sem verja hvora aðra
100 Gb Hraðbraut - löng
100 Gb Hraðbraut - löng er samband sem hentar viðskiptavinum sem þurfa mikla bandvídd á milli gagnaversins BDC Mining á Blönduósi og Reykjavíkur. Afhendingarstaður í Reykjavík er Múlastöð, Suðurlandsbraut 28 og á Blönduósi er afhendingarstaður Etix Everywhere Borealis.
Eitt fast verð er fyrir hvert samband. Bandvídd er fullkomlega frátekin, aðskilin og tryggð, sambærilegt sambandi yfir svartan ljósleiðara.
Með það að markmiði að hámarka rekstraröryggi eru lagnaleiðir sérvaldar og öll sambönd og leiðir eru vaktaðar af kerfisvöktun Mílu, allan sólarhringinn, alla daga, allt árið.
Í fyrsta áfanga verður aðeins ein leið í boði, en á á áætlun er að byggja upp tvær fullkomlega aðskildar leiðir.
Helstu einkenni og kostir 100 Gb Hraðbraut-löng
- Bundin við BDC Mining gagnaverið á Blönduósi og Reykjavík
- Mikil bandvídd
- Verð er óháð vegalengd
- Sambærilegt sambandi yfir svartan ljósleiðara
- Mikið öryggi - sambandið er vaktað allan sólarhringinn, alla daga, allt árið
- Lagnaleiðir eru sérvaldar til að einfalda viðhald, auka öryggi og bæta yfirsýn
- Í boði eru 1Gb/s, 10Gb/s og 100Gb/s sambönd með Ethernet tengiskilum (portum)
- Hægt er að óska eftir öðrum tegundum tengiskila eins og FC, allt eftir óskum viðskiptavina
- Á áætlun er að setja upp aðskildar leiðir sem verja hvora aðra
Hraðbraut
Vinna og þjónusta
Verð er án virðisaukaskatts.
Eftirfarandi verðskrá gildir frá 1. janúar 2023
Verðskráin gildir um aðra vinnu á vegum Mílu en vettvangsþjónustu.
Dagvinnutaxtar gilda á virkum dögum milli kl. 8:00 og 17:00, á öðrum tímum gilda yfirvinnutaxtar. Útkall er aldrei minna en 4 tímar.
Flokkur | Dagvinna | Yfirvinna |
---|---|---|
Tæknimaður B | 12.645 kr. | 17.702 kr. |
Sérfræðingur C | 14.186 kr. | 19.855 kr. |
Sérfræðingur D | 16.600 kr. | 23.225 kr. |
Sérfræðingur E1 | 19.306 kr. | 27.039 kr. |
Sérfræðingur G1 | 25.644 kr. | 35.906 kr. |
Umsýslugjald | 14.186 kr. | |
Mælitækjagjald | 6.270 kr. |
Skýring:
Flokkur B = Vinna við fjarskiptanet Mílu s.s. tengingar og frágangur á fjarskiptakerfum.
Flokkur C = Vinna sérfræðinga og eftirlitsmanna við fjarskiptanet, s.s. hönnun og uppsetningu á búnaði.
Flokkur D = Vinna verk- og tæknifræðinga sem og annarra sérfræðinga.
Flokkur E = Sérhæfð vinna verk- og tæknifræðinga sem og annarra sérfræðinga.
Flokkur G = Sérhæfð ráðgjöf og/eða hönnunarvinna sérfræðings í fjarskiptakerfum og/eða aðkoma að uppsetningu og rekstri á flóknum fjarskiptakerfum.Umsýslugjald = Gjald sem er innheimt í þeim tilvikum sem Míla endurrukkar áfallinn kostnað frá þriðja aðila. Kostnaður við að koma verki í framkvæmd, fylgja því eftir til enda, koma því í reikningagerð, kröfugerð og innheimtu.
Álag vegna vinnu
Akstur
Innheimt er daggjald og kílómetragjald samkvæmt ferðakostnaðarnefnd ríkisins, breytilegt eftir bifreiðategundum.
Vinnureglur
Greitt er fyrir að fá mann á staðinn samkvæmt verðskrá. Ef bilunin reynist vera á búnaði í eigu Mílu tekur fyrirtækið á sig kostnað vegna greiningar og bilunar en þó ekki kostnað sem viðskiptavinur telur sig verða fyrir vegna skertrar þjónustu eða annarra afleiddra óþæginda.
Til viðmiðunar eru notaðar reglur Fjarskiptastofu um innanhússlagnir en þar segir meðal annars í 4. grein:
Húseigendur eru ábyrgir fyrir innanhússlögnum fyrir fjarskipti frá nettengipunkti. Byggingarfulltrúi samþykkir teikningar af fjarskiptalögnum og hefur eftirlit með því að lagnir séu í samræmi við samþykktar teikningar.
Húseigendur bera ábyrgð á öllu viðhaldi, breytingum og endurnýjun innanhússlagna. Húseigendur bera ábyrgð á því að heildstæði almennra fjarskiptaneta raskist ekki af tengingu þeirra við innanhússlagnir.
Dagpeningar vegna ferðalaga
Innheimtur er kostnaður vegna fæðis og gistingar, fjárhæðir taka breytingum skv. ákvörðun ferðakostnaðarnefndar ríkisins á hverjum tíma.
Sambönd sem byggja á hefðbundinni rásaskiptri gagnaflutningsþjónustu. Ethernetsambönd eru í boði á milli hnútpunkta/tækjarýma í stofnneti Mílu (Ethernet milli stöðva) og frá hnútpunkti/tækjarými til inntakskassa hjá endanotanda (EyK).
Ethernet milli stöðva
Sambönd milli hnútpunkta / tækjarýma í stofnneti Mílu og eru verð háð vegalengd. Í boði eru 10/100 Mb (FE), 1Gb og 10 GB Ethernet tengiskil. Bandvídd er alltaf frátekin og aðskilin annarri umferð.
Eiginleikar
- Fullkomlega frátekin og tryggð bandvídd
- Mögulegt að setja upp vara á aðskildri leið á sömu tengiskilum (SNCP)
- Vari fyrir samband kostar 20 - 50% af verði sambands
- Samböndin eru vöktuð af kerfisvöktun Mílu allan sólarhringinn, alla daga, allan ársins hring
Etnernet milli stöðva hentar meðal annars sem:
- Burðarnet internets- og sjónvarpsþjónustu
- Burðarnet farsímaþjónustu, 3G, 4G/LTE og 5G
- Burðarnet öryggisfjarskipta
- Almennar leigulínur
Ethernet yfir Kopar - EyK
Ethernet yfir kopar eru sambönd frá hnútpunkti / tækjarými í stofnneti Mílu að inntakskassa hjá endanotanda og eru óháð vegalengd. Í boði eru 10/100 Mb (FE) tengiskil. Bandvídd er samhverf og aðskilin annarri umferð.
Eiginleikar
- Nýtir koparlagnir í jörðu og því fljótlegt og auðvelt í uppsetningu samanborið við lagningu ljósleiðara
- Oftast hægt að nýta núverandi innanhússlagnir
- Ekki er þörf á nýjum búnaði hjá endanotanda
Verðskrá
Ethernetsambönd milli stöðva í stofnneti
Stærð sambands | Mánaðarverð | km.verð pr. mán | Stofnverð |
---|---|---|---|
2 Mb/s | 16.082 kr. | 541 kr. | 96.386 kr. |
6 Mb/s | 26.366 kr. | 887 kr. | 96.386 kr. |
10 Mb/s | 33.179 kr. | 1.116 kr. | 96.386 kr. |
20 Mb/s | 36.003 kr. | 1.211 kr. | 96.386 kr. |
26 Mb/s | 39.465 kr. | 1.327 kr. | 96.386 kr. |
28 Mb/s | 40.502 kr. | 1.362 kr. | 96.386 kr. |
30 Mb/s | 41.492 kr. | 1.396 kr. | 96.386 kr. |
46 Mb/s | 48.188 kr. | 1.621 kr. | 96.386 kr. |
48 Mb/s | 48.911 kr. | 1.645 kr | 96.386 kr. |
50 Mb/s | 49.615 kr. | 1.669 kr. | 96.386 kr. |
100 Mb/s | 58.478 kr. | 1.967 kr. | 96.386 kr. |
150 Mb/s | 66.850 kr. | 2.249 kr. | 96.386 kr. |
200 Mb/s | 73.508 kr. | 2.472 kr. | 96.386 kr. |
300 Mb/s | 84.032 kr. | 2.826 kr. | 96.386 kr. |
400 Mb/s | 92.400 kr. | 3.108 kr. | 96.386 kr. |
500 Mb/s | 99.461 kr. | 3.345 kr. | 96.386 kr. |
700 Mb/s | 111.141 kr. | 3.738 kr. | 96.386 kr. |
1 Gb/s | 125.024 kr. | 4.205 kr. | 96.386 kr. |
2 Gb/s | 157.157 kr. | 5.286 kr. | 96.386 kr. |
4 Gb/s | 197.548 kr. | 6.645 kr. | 96.386 kr. |
5 Gb/s | 212.644 kr. | 7.153 kr. | 96.386 kr. |
6 Gb/s | 225.830 kr. | 7.596 kr. | 96.386 kr. |
7 Gb/s | 237.616 kr. | 7.992 kr. | 96.386 kr. |
10 Gb/s | 267.296 kr. | 8.991 kr. | 96.386 kr. |
Sjá verðskrá fyrir vinnu og þjónustu.
Stofnlínur eru sambönd sem byggja á hefðbundinni rásaskiptri gagnaflutningsþjónustu. Stofnlínur eru í boði á milli hnútpunkta / tækjarýma í stofnneti Mílu (stofnlína) og frá hnútpunkti /tækjarými til inntakskassa hjá endanotanda (aðgangslína)
Stofnlína
Stofnlína er samband sem liggur á milli hnútpunkta / tækjahúsa í stofnneti Mílu og er verð háð vegalengdum. Í boði eru 64Kb, 256Kb, 512Kb, 2Mb, 45Mb, 155Mb og 622 Mb tengiskil. Bandvídd er alltaf frátekin og aðskilin annarri umferð.
Aðgangslína
Aðgangslína (stafræn lína) er samband frá hnútpunkti/tækjarými í stofnneti Mílu til inntakskassa hjá endanotanda og er verð óháð vegalengd. Í boði eru 64Kb til 2Mb tengiskil. Bandvídd er samhverf og aðskilin annarri umferð. Aðgangslína nýtir koparlagnir í jörðu og er sambandið því fljótlegt og auðvelt í uppsetningu samanborið við lagningu ljósleiðara.
Verðskrá
Leigulínur
Stærð sambands | Mánaðarverð | Km. verð | Stofnverð |
---|---|---|---|
64 Kb/s | 3.417 kr. | 115 kr. | 96.386 kr. |
128 Kb/s | 4.668 kr. | 157 kr. | 96.386 kr. |
256 Kb/s | 6.376 kr. | 214 kr. | 96.386 kr. |
512 Kb/s | 8.710 kr. | 293 kr. | 96.386 kr. |
2 Mb/s | 16.082 kr. | 541 kr. | 96.386 kr. |
45 Mb/s | 47.819 kr. | 1.608 kr. | 96.386 kr. |
155 Mb/s | 67.578 kr. | 2.273 kr. | 96.386 kr. |
622 Mb/s | 106.892 kr. | 3.595 kr. | 96.386 kr. |
Notendalínur með endabúnaði
Varðar stofnlínur
Færslu og breytingagjald leigulína
Í boði eru allir ljósleiðarar sem nú þegar eru til staðar í fjarskiptaneti Mílu og eru ekki skráðir í notkun. Ef um er að ræða tengingar þar sem fara þarf í sérstakar framkvæmdir, þarf að leita eftir tilboðum.
Ljóslína í stofnneti
Ljóslína í stofnneti er skilgreind sem ljósleiðari á ljósleiðaratengigrind Mílu á milli tveggja hnútpunkta / tækjarýma innan stofnnets Mílu. Verð er háð vegalengd og er gjaldfærð vegalengd að lágmarki 1 km.
Ljóslína í aðgangsneti
Ljóslína í aðgangsneti er skilgreind sem ljósleiðari frá hnútpunkti / tækjarými innan stofnnets Mílu til inntakskassa hjá endanotanda og er með fast verð óháð vegalengd. Ljóslína í aðgangsneti er án endabúnaðar.
Verðskrá
Ljóslína
Lýsing | Mánaðarverð | Stofnverð |
---|---|---|
Ljóslína, notendalínuhluti eitt par | 19.681 kr. | 96.680 kr. |
Ljóslína, notendalínuhluti einn þráður | 13.777 kr. | 96.680 kr. |
Ljóslína í stofnlínuhluta leigulína
Lýsing | Mánaðarverð | Stofnverð |
---|---|---|
Ljósleiðari milli stöðva í þéttbýli eitt par, pr.km | 20.826 kr. | 96.386 kr. |
Ljósleiðari milli stöðva í dreifbýli eitt par, pr.km | 8.869 kr. | 96.386 kr. |
Ljóslína milli stöðva í þéttbýli einn þráður, pr.km | 17.738 kr. | 96.386 kr. |
Ljóslína milli stöðva í dreifbýli einn þráður, pr.km | 7.554 kr. | 96.386 kr. |
Stofnverð á ljóslínu samsett af ljósleiðara á milli stöðva og notendalínuhluta
Lýsing | Stofnverð |
---|---|
Ljósleiðari milli stöðva + einn notendalínuleggur | 144.726 kr. |
Ljósleiðari milli stöðva + tveir notendalínuleggir | 193.066 kr. |
Ljóslína í götuskáp
Lýsing | Mánaðarverð |
---|---|
Einn ljósþráður | 6.888 kr. |
Tveir ljósþræðir | 9.840 kr. |
Þrír ljósþræðir | 12.793 kr. |
Fjórir ljósþræðir | 15.745 kr. |
Ljóslína innanhúss í tækjarými
Lýsing | Mánaðarverð | Stofnverð |
---|---|---|
Ljósleiðari innanhúss í tækjarými | 1.100 kr. | 48.193 kr. |
Færslu og breytingagjald Ljóslínu
Lýsing | Upphæð |
---|---|
Flutningur á sambandi | 48.193 kr. |
Ljósbylgja er samband sem er fullkomlega aðskilið frá öðrum samböndum í kerfum Mílu með frátekna og tryggða bandvídd. Lagnaleiðir eru skipulagðar með það að markmiði að hámarka rekstraröryggi.
Ljósbylgja er samband sem er fullkomlega aðskilið frá öðrum samböndum í kerfum Mílu með frátekna og tryggða bandvídd, sambærilegt og að um væri að ræða ljósleiðara tengingu (sýndar ljósleiðari).
Lagnaleiðir eru sérstaklega skipulagðar með það að markmiði að hámarka rekstraröryggi og eru öll sambönd og leiðir vaktaðar af kerfisvöktun Mílu allan sólarhringinn, alla daga, allan ársins hring.
Ljósbylgja er í boði á völdum stöðum á landshring og á höfuðborgarsvæðinu. Á öllum stöðum er í boði 100Gb/s tengiskil/bandvídd. Hægt er að óska eftir 25Gb/s, 10Gb/s og 1Gb/s tengiskilum/bandvídd, en afgreiðsla er háð forðastöðu.
Ljósbylgjustaðir Mílu
Helstu kostir og einkenni Ljósbylgju:
- Mikil bandvídd.
- Aðskilin bandvídd á sér ljósrásum.
- Tryggð bandvídd.
- Sambærilegt sambandi yfir ljósleiðara (virtual fibre).
- Mikið öryggi, sambandið er vaktað allan sólarhringinn, alla daga, allt árið.
- Hægt er að kaupa aðskildar leiðir sem verja hvor aðra á ljósleiðaralagi.
- Lagnaleiðir eru sérvaldar til að einfalda viðhald, auka og bæta öryggi.
Þjónustusvæði Ljósbylgju

Ljósbylgja
Hægt er að óska eftir 25, 10 og 1 Gb/s bandvídd, afgreiðsla er háð forðastöðu.
Verð er án vsk.
Vegalengd (km) | Hraði 100 Gb/s | Hraði 25 Gb/s | Hraði 10 Gb/s | Hraði 1 Gb/s |
---|---|---|---|---|
0-25 km | 231.912 kr. | 140.977 kr. | 101.490 kr. | 44.494 kr. |
26-50 km | 291.631 kr. | 177.739 kr. | 128.166 kr. | 56.409 kr. |
51-100 km | 370.432 kr. | 226.247 kr. | 163.365 kr | 72.132 kr |
101-200 km | 474.410 kr. | 290.254 kr. | 209.810 kr. | 92.879 kr |
201-300 km | 550.020 kr. | 336.796 kr. | 243.584 kr. | 107.965 kr. |
300 km+ | 611.610 kr. | 374.709 kr. | 271.095 kr | 120.254 kr |
Afgreiðslugjald er 96.386 kr.
Skammtímasambönd eru sambönd sem hugsuð eru til skammtímaleigu - einn til þrír dagar í einu, t.d. vegna beinna útsendinga frá íþróttaviðburðum eða öðrum viðburðum.
Skammtímatengingar frá sítengdum stöðum
Skammtímatengingar eru í boði frá sítengdum fyrirfram skilgreindum stöðum t.d. fyrir sýningar frá íþróttaleikjum eða aðrar beinar útsendingar. Sjá nánar í viðmiðunartilboði leigulína, verðskrá í viðauka 2a.1.13-14.
Lista yfir sítengda staði er að finna í verðskrá.
Samningsbundnar skammtímatengingar
Samningsbundnar skammtímatengingar frá sítengdum stöðum eru einnig í boði yfir ákveðið tímabil vegna t.d. sýninga frá deildarkeppnum eða aðrar beinar útsendingar. Sjá nánar í viðmiðunartilboði leigulína, verðskrá í viðauka 2a. 1.13-14.
Aðrar skammtímatengingar
Míla bíður einnig sérhæfðar tímabundnar skammtímalausnir. Sjá nánar í viðmiðunartilboði leigulína, verðskrá í viðauka 2a 1.15-17.
Verðskrá
Verð er án virðisaukaskatts.
Aðrar skammtímatengingar (30Mb)
Skammtímasamband 1 dagur | Verð |
---|---|
Höfuðborgarsvæðið | 111.722 kr. |
Landsbyggðin 0 - 49 km. | 122.650 kr. |
Landsbyggðin 50 - 99 km. | 135.782 kr. |
Landsbyggðin >100 km. | 148.914 kr. |
Skammtímasamband hver dagur umfram 1 dag | Verð |
Höfuðborgarsvæðið | 6.134 kr. |
Landsbyggðin 0 - 49 km. | 10.506 kr. |
Landsbyggðin 50 - 99 km. | 15.758 kr. |
Landsbyggðin >100 km. | 21.011 kr. |
Afgreiðslugjald | Verð |
Ef pöntun berst innan 10 virkra daga | 36.932 kr. |
Ef pöntun berst innan 2ja virkra daga | 61.554 kr. |
Aðrar skammtímatengingar (150Mb)
Skammtímasamband 1 dagur | Verð |
---|---|
Höfuðborgarsvæðið | 121.094 kr. |
Landsbyggðin 0 - 49 km. | 138.701 kr. |
Landsbyggðin 50 - 99 km. | 159.859 kr. |
Landsbyggðin >100 km. | 181.016 kr. |
Skammtímasamband hver dagur umfram 1 dag | Verð |
Höfuðborgarsvæðið | 9.883 kr. |
Landsbyggðin 0 - 49 km. | 16.926 kr. |
Landsbyggðin 50 - 99 km. | 25.389 kr. |
Landsbyggðin >100 km. | 33.852 kr. |
Afgreiðslugjald | Verð |
Ef pöntun berst innan 10 virkra daga | 36.932 kr. |
Ef pöntun berst innan 2ja virkra daga | 61.554 kr. |
Aðrar skammtímatengingar (Ljóslína)
Skammtímasamband 1 dagur | Verð |
---|---|
Höfuðborgarsvæðið | 128.508 kr. |
Landsbyggðin 0 - 49 km. | 175.761 kr. |
Landsbyggðin 50 - 99 km. | 215.448 kr. |
Landsbyggðin >100 km | 255.136 kr. |
Skammtímasamband hver dagur umfram 1 dag | Verð |
Höfuðborgarsvæðið | 19.276 kr. |
Landsbyggðin 0 - 49 km. | 26.364 kr. |
Landsbyggðin 50 - 99 km. | 32.317 kr. |
Landsbyggðin >100 km. | 38.270 kr. |
Afgreiðslugjald | Verð |
Ef pöntun berst innan 10 virkra daga | 36.932 kr. |
Ef pöntun berst innan 2ja virkra daga | 61.554 kr. |