Vestfirðir hringtengdir
Tenging er komin á nýja ljósleiðarahringinn um Vestfirði og þar með er samband komið á og Vestfirðir orðnir tvítengdir við Ljósleiðarahring Mílu.
Tenging er komin á nýja ljósleiðarahringinn um Vestfirði en starfsmenn Mílu luku við að tengja saman leiðina og settu stofnnetsbúnað á strenginn nú á dögunum og þar með er samband komið á hringtengingu Vestfjarða og Vestfirðir orðnir tvítengdir við Ljósleiðarahringinn.
Fyrsti hluti verkefnisins um hringtengingu ljósleiðara á Vestfjörðum var unninn á síðasta ári og sá Míla, í samstarfi við Orkubú Vestjarða, um að leggja ljósleiðara frá Stað í Hrútafirði og til Hólmavíkur, alls um 110 km. leið. Míla hafði áður lagt um 65 km af ljósleiðara yfir Steingrímsfjarðarheiði og hluta af Djúpinu. Öryggisfjarskipti sáu svo um seinni hluta verkefnisins frá Nauteyri í Ísafjarðardjúpi að Súðavík, um 55 km leið sem lauk í haust. Veitti Míla Öryggisfjarskiptum ráðgjöf og aðstoð við það verkefni. Míla sér um rekstur á þeim streng samkvæmt samkomulagi við Neyðarlínuna.
Nú í desember lauk Míla við að tengja ljósleiðara frá Ísafirði að Nauteyri, sem eru um 80 km. Þetta lokar því nýju ljósleiðaraleiðinni frá Ísafirði, að Nauteyri, Hólmavík og Stað í Hrútafirði þar sem ljósið tengist landshring Mílu. Þar með er Míla komin með fyrsta 10Gb/s stofnnetshringinn um Vestfirði sem tengist landshringnum og í raun eru engin takmörk á hversu mikið er hægt að auka flutningsgetuna til framtíðar.
Fyrir voru um 290 km af stofnljósleiðara Mílu á Vestfjörðum, 21 km, milli Ísafjarðar og Súðavíkur og um 270 km suðvestur leiðina til Ísafjarðar. Samtals eru því um 500 km af stofnljósleiðarastrengjum sem þjónar fjarskiptum á Vestfjörðum. Þessir strengir ásamt fjölda af örbylgjusamböndum sem eru til vara og til að þjóna afskekktum stöðum tengjast saman í fjölda hýsingarstaða Mílu og mynda öflugt grunnnet á Vestfjörðum.