Uppbygging fjarskipta á Íslandi
Fjárfestingar í uppbyggingu fjarskiptatenginga á Íslandi hafa verið miklar á síðustu 2-3 árum og verða enn meiri á komandi árum. Míla sem undirstaða fjarskipta á Íslandi tekur virkan þátt í þessari mikilvægu uppbyggingu, um allt land.
Ljósleiðari til heimila á höfuðborgarsvæðinu
Míla leggur nú ljósleiðara til heimila á höfuðborgarsvæðinu. Markmið ársins er að klára að tengja 30.000 heimili og geta heimilin þá byrjað að nýta sér tenginguna með því að hafa samband við sitt fjarskiptafyrirtæki og panta þjónustu. Ljósleiðarakerfi Mílu er opið öllum fyrirtækjum sem veita fjarskiptaþjónustu á Íslandi og takmarkar því ekki val notenda um fjarskiptaþjónustu. Míla býður jafnframt fjarskiptafélögum sveigjanlegar aðgangsleiðir líkt og hefðbundið er með opin kerfi. Mögulegur hraði sem viðskiptavinir Mílu geta boðið notendum á höfuðborgarsvæðinu um Ljósleiðara Mílu er 100 Mb/s og 500 Mb/s. Frá og með 1. febrúar 2017 verður 1 Gb/s einnig í boði á Ljósleiðara Mílu.
Míla hóf tengingu ljósleiðara til heimila í eldri hverfum á höfuðborgarsvæðinu á síðasta ári. Verkefnið er metnaðarfullt og hraðinn við uppbyggingu mjög mikill og hraðari en þekkst hefur hérlendis. Framgangurinn á árinu hefur verið góður og útlit fyrir að áætlanir standist þannig að 30.000 heimili verði tengd fyrir lok árs. Markmið Mílu til lengri tíma er að klára að tengja öll heimili á höfuðborgarsvæðinu fyrir árslok 2018.
Það sem gerir Mílu kleift að ljósleiðaravæða heimili á höfuðborgarsvæðinu eins hratt og raun ber vitni, er sú staðreynd að fyrirtækið á mikið magn af innviðum sem nýtast við verkið. Uppbygging Ljósnets Mílu síðustu ár hefur lagt góðan grunn en með lagningu Ljósnetsins var lagður ljósleiðari í götuskápa í öllum hverfum og því í nágrenni við öll heimili. Þannig á aðeins eftir að bæta við ljósleiðara þann stutta spöl sem eftir er inn á heimilin. Einnig var fjöldi heimila þegar með ljósleiðara frá fyrirtækinu inn í hús, sem aðeins átti eftir að tengja til stöðvar. Til viðbótar á Míla mikið magn af rörum í götum og inn í hús sem aðeins á eftir að blása ljósleiðara í sem lágmarkar vinnu við lagningu þann spöl sem eftir er.
Nýting innviða sparar ekki aðeins tíma heldur gerir þetta fyrirtækinu kleift að ljósleiðaravæða heimilin á höfuðborgarsvæðinu fyrir brot af þeim kostnaði sem annars hefði þurft, t.d. ef þurft hefði að leggja í mikla jarðvinnu sem er langdýrasti hluti svona framkvæmda. Ennfremur lágmarkar eign innviða það jarðrask sem oft fylgir slíkum framkvæmdum.
Ljósleiðari á landsbyggðinni
Á sama tíma er lagning ljósleiðara í dreifbýli komin á skrið. Verkefni Fjarskiptasjóðs, „Ísland ljóstengt“ hefur þegar sett af stað verkefni í 14 sveitarfélögum um allt land. Míla hefur komið að mörgum þessara verkefna á margvíslegan hátt. Míla hefur lagt og rekið þá fjarskiptainnviði sem til staðar eru í dreifbýli frá upphafi og hefur því mikla þekkingu og reynslu. Míla hefur einnig lagt og rekið allar helstu ljósleiðarastofnlagnir fjarskipta á Íslandi sem byrjað var að leggja árið 1986. Eins og í þéttbýli á Míla víða innviði sem lagðir hafa verið gegnum tíðina og geta nýst við að lágmarka framkvæmdakostnað nýrra verkefna. Míla býður sveitarfélögum fjölþætta ráðgjöf við hönnun, uppbyggingu og rekstur ljósleiðarakerfa. Míla mun bjóða sína fjarskiptaþjónustu yfir ljósleiðarakerfi í dreifbýli, hvort sem þau eru í eigu Mílu, sveitafélaga eða annarra. Þannig mun Míla í gegnum sitt opna kerfi veita öllum fjarskiptafyrirtækjum aðgang að þjónustu við notendur allstaðar á landinu. Það er mikilvægt fyrir fjarskipti á Íslandi og öryggi þessarar mikilvægu grunnþjónustu að einn öflugur aðili geti boðið öllum heildstæða þjónustu.
Á næstunni mun Mila bjóða þjónustu sína á nokkrum nýjum kerfum í dreifbýli, s.s. í Svalbarðshreppi, Þingeyjarsýslu, Húnavatnshreppi og í dreifbýli sveitafélagsins Blönduós. Nú þegar er þjónusta Mílu í boði á ljósleiðara víða í dreifbýli s.s. í Skagabyggð, Hvalfjarðarstrandarhrepp, Skeiða og Gnúpverjahrepp, Helgafellssveit, Húnaþingi Vestra, Eyja og Miklaholtshrepp, Eyjafjarðarsveit, Skagafirði og Ásahrepp svo eitthvað sé nefnt.
Lagning stofnljósleiðara á Vestfjörðum hefur staðið yfir síðustu tvö ár. Markmiðið var að leggja stofnlögn frá Stað í Hrútafirði til Súðavíkur og ná þannig hringtengingu stofnlagna á Vestfjörðum. Á síðasta ári kláraði Míla að leggja fyrrihluta þess verkefnis, frá Stað i Hrútafirði til Hólmavíkur. Seinni hluti verkefnisins féll svo í hlut Neyðarlínunnar, en Míla hefur komið að því verkefni m.a. með ráðgjöf og hönnun. Til viðbótar eru notaðir eldri leggir Mílu sem til staðar eru s.s. yfir Steingrímsfjarðarheiði. Míla mun sjá um rekstur þessarar stofnlagnar. Þetta verkefni sem styrkt er af Fjarskiptasjóði mun auka öryggi fjarskipta á Vestfjörðum verulega auk þess sem það mun jafnframt nýtast við tengingu íbúa í dreifbýli.
Samhliða þessu byggir Míla áfram upp Ljósnet í þéttbýli víða um land sem mun þjóna íbúum og tryggja þeim háhraðatengingu hratt og á hagstæðu verði. Ljósleiðari Mílu og Ljósnet Mílu munu á komandi árum sjá um að veita öllum landsmönnum aðgang að háhraðatengingu með heildstæðum hætti sem stofnlagnir Mílu sjá um að tengja við umheiminn.