Samningur milli Mílu og Grímsnes og Grafningshrepps
Í dag, föstudaginn 22. september undirrituðu Míla og sveitafélagið Grímsnes og Grafningshreppur samning um lagningu ljósleiðara í Grímsnes og Grafningshrepp.
Samningurinn var gerður á grundvelli útboðs ríkiskaupa þar sem Míla átti lægsta tilboðið. Jón Ríkharð Kristjánsson framkvæmdastjóri Mílu og Gunnar Þorgeirsson oddviti Grímsness og Grafningshrepps undirrituðu samninginn.
Alls er gert ráð fyrir að tengja 137 lögheimili og fyrirtæki í sveitafélaginu. Þá er gert ráð fyrir að sumarhús á svæðinu muni í kjölfarið geta gengið aðgang að ljósleiðaratengingum.
Verkefninu verður skipt í 3 áfanga og gert er ráð fyrir að verktími verði 3 ár í heildina. Fyrstu notendur á nýjum ljósleiðara verða tengdir á þessu ári.