Rangfærslur leiðréttar
Rangfærslur um framkvæmdir við lagningu fjarskiptalagna leiðréttar
Á vef Gagnaveitu Reykjavíkur (GR) er að finna nýlega grein sem virðist meðal annars eiga að vera réttlæting á þeirri framgöngu félagsins að vilja ekki hafa samstarf við Mílu um jarðvegsframkvæmdir vegna lagningu á ljósleiðara. Því miður er óhjákvæmilegt annað en að gera nokkrar athugasemdir við þá röksemdarfærslu sem kemur fram í greininni.
Lágmarka rask, lágmarka kostnað og öryggi íbúa
Til að réttlæta viljaleysi um samstarf með Mílu er því haldið fram í grein GR að með því að hafa skurði opna sem styst náist aukið öryggi íbúa, það lágmarki rask og lækki kostnaði við framkvæmdirnar. Þetta eru öfugsnúin rök. Tilgangur samnýtinga framkvæmda er einmitt að lágmarka rask fyrir íbúa, þannig að ekki sé verið að grafa upp sama staðinn tvisvar með stuttu millibili. Á sama hátt mun tvíframkvæmd ekki auka öryggi íbúa. Þó lagt sé fyrir tvo aðila í stað eins á það ekki að hafa merkjanleg áhrif á hve lengi skurður er opinn. Að loka skurði hratt lækkar ekki heldur kostnað. Framkvæmdir byggja á einingarverðum og sá þáttur hve skurður er lengi opinn hefur engin áhrif á verðið. Við samnýtingu jarðvegsframkvæmda lækkar hins vegar kostnaður þar sem tveir aðilar skipta með sér kostnaði við að grafa skurð og leggja nýtt yfirborð.
Tímasetningar á beiðni um samstarf
Í grein GR er sagt að beiðni um samstarf hefði þurft að koma miklu fyrr vegna skuldbindinga GR gagnvart verktökum og íbúum. Míla veit hins vegar betur því félagið þekkir vel að ekki þarf langan tíma til að koma á samstarfi.
Míla þarf samkvæmt fjarskiptareglum að tilkynna sínar framkvæmdir með sex mánaða fyrirvara. Ef fjarskiptafélag hefur áhuga á þátttöku í verkefni á vegum Mílu getur það lagt fram slíka ósk með nokkurra vikna fyrirvara. Þetta er vel þekkt hjá Mílu og er leyst án vandkvæða. Þetta er best að skýra með nokkrum dæmum:
Dæmi 1: Nú vill þannig til að Míla tilkynnti þann 11. janúar um fyrirhugaða framkvæmd í Setbergi í Hafnarfirði. Þetta er verkefni sem var hannað og undirbúið af Mílu á síðasta ári og átti að vinnast í sumar. Þann 26. apríl síðastliðinn sendi GR Mílu ósk um þátttöku í verkefninu í Setbergi sem Míla samþykkti. Þennan sama dag tilkynnti GR Mílu að félagið gæti ekki tekið þátt í samstarfi með Mílu um jarðvegsframkvæmdir þar sem GR ætlaði að framkvæma. Það er athyglisvert að GR virðist því líta svo á að Míla geti sinnt samstarfi við jarðvegsframkvæmdir án þess að það þurfi langan undirbúning eða hafi áhrif á skuldbindingar en það gangi hins vegar alls ekki fyrir GR.
Dæmi 2: Jarðvinnuverktaki GR í Hafnarfirði tók fram fyrir hendur GR og lagði lagnir fyrir Mílu samhliða framkvæmdum fyrir GR (sem GR hafði þó áður sagt að væri ekki hægt). Þetta gerði verktakinn án samráðs við GR og sýnir augljóslega að fullyrðingar félagsins standast ekki.
Dæmi 3: Í Kópavogi er verktaki GR nú farinn að sinna samstarfi og vinna fyrir Mílu þökk sé Kópavogsbæ sem þvingaði GR til samstarfs með því að gefa út skilyrt framkvæmdaleyfi. Ekki var langur aðdragandi að þeim framkvæmdum.
Loks má benda á að RARIK auglýsir sínar framkvæmdir um allt land með stuttum fyrirvara og fjarskiptafyrirtæki eða aðrir sem vilja samnýta þær geta auðveldlega tekið þátt.
Raunveruleikinn hér er því allt annar en GR heldur fram hvort sem það snýr að kostnaði, raski, öryggi íbúa eða tímasetningum um samstarf.
Fleiri rangfærslur er að finna í skrifum GR sem Míla hyggst leiðrétta.
Vert er að taka fram að Gagnaveita Reykjavíkur (GR) er í eigu Orkuveitu Reykjavíkur sem er að langstærstum hluta í eigu Reykjavíkurborgar og GR er því fyrirtæki í opinberri eigu.