Míla undirritar yfirlýsingu um loftslagsmál
Míla er meðal þeirra 103 fyrirtækja og stofnana sem undirrituðu yfirlýsingu um aðgerðir í loftslagsmálum í Höfða.
Míla var meðal þeirra fyrirtækja og stofnana, ásamt Festu og Reykjavíkurborg, sem skrifuðu undir yfirlýsingu um aðgerðir í loftslagsmálum í Höfða á mánudag. Þátttaka var framar öllum vonum en alls skuldbundu 103 fyrirtæki og stofnanir sig til að setja sér markmið og fylgja þeim eftir með aðgerðum sem draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og minnka myndun úrgangs. Auk þess verður árangur mældur og upplýsingum um stöðu mála miðlað reglulega.
Reykjavíkurborg og Festa, miðstöð um samfélagsábyrgð fyrirtækja, efndu til þessa samstarfs og markar undirskriftin formlegt upphaf verkefnisins. Það er hugsað sem hvatning til rekstraraðila um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og sýna þannig frumkvæði og ábyrgð gagnvart umhverfinu og samfélaginu. Þátttakendum verður boðin fræðsla um loftslagsmál, bæði hvernig nálgast á viðfangsefnið með praktískum hætti og með reynslusögum annarra fyrirtækja af því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda í rekstri.
Fyrirtækin sem skrifuðu undir eru af ýmsum toga, stór og lítil fyrirtæki, framleiðslufyrirtæki, fyrirtæki í iðnaði og þjónustu, háskólar o.s.frv. Samanlagður starfsmannafjöldi fyrirtækjanna er rúmlega 43 þúsund og því til viðbótar mætti telja rúmlega 30 þúsund nemendur í þeim skólum sem tengjast menntastofnunum sem taka þátt. Þjónusta þessara fyrirtækja og stofnana tengist öllum landsmönnum með einum eða öðrum hætti.
Í byrjun desember næstkomandi verður 21. Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna haldin í París og þar verður Rammasamningur Sameinuðu þjóðanna vegna loftslagsbreytinga (UNFCCC) samþykktur, en markmið hans er að sporna við hnattrænni hlýnun og draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.
Míla er aðili að Festu, miðstöð um samfélagsábyrgð fyrirtækja og með þessari undirskrift skuldbindur fyrirtækið sig til að leggja sitt að mörkum við að minnka losun gróðurhúsalofttegunda og draga úr myndun úrgangs. Míla mun setja sér markmið sem fylgt verður eftir með aðgerðum og árangur mældur.