17. apríl 2018

Míla og Gagnaveita Reykjavíkur taka höndum saman

Samvinna í framkvæmdum um lagningu ljósleiðara til heimila á höfuðborgarsvæðinu

 

Míla og Gagnaveita Reykjavíkur hafa gert með sér samkomulag um samstarf við uppbyggingu ljósleiðara til heimila á höfuðborgarsvæðinu. Samkomulagið felur í sér að hvort félag um sig tekur að sér ákveðin svæði og leggur þar tvö sjálfstæð ljósleiðarakerfi, fyrir báða samningsaðila, í einni og sömu framkvæmdinni.

Markmið með samstarfinu er að ná fram hagræðingu með því að koma í veg fyrir mögulegan tvíverknað, stytta verktíma og minnka jarðrask og áhrif á íbúa. Svæðin sem um ræðir eru í Hafnarfirði, Garðabæ og Mosfellsbæ. Framkvæmdir munu hefjast á næstu dögum og verklok verða fyrir árslok.

Míla og Gagnaveita Reykjavíkur eiga í samkeppni og hafa því fengið undanþágu frá Samkeppniseftirlitinu til þess að eiga með sér ofangreint samstarf.

Bæði Míla og Gagnaveita Reykjavíkur eru ánægð með þennan samning og telja þetta samstarf vera til góða fyrir samningsaðila, viðskiptavini, sveitarfélög og neytendur.