Ljósnet til allra heimila á Stykkishólmi
Nú hefur þeim áfanga verið náð að öll heimili á Stykkishólmi eru orðin tengd Ljósneti Mílu.
Míla hefur verið að vinna að því að klára að tengja þau heimili á Stykkishólmi við Ljósnetið, sem ekki voru þegar komin með tengingu frá símstöðinni. Nú hefur þeim áfanga verið náð að nær öll heimili á Stykkishólmi eru orðin tengd Ljósneti Mílu og þar með geta heimilin nýtt sér háhraðanetstengingu um Ljósnetið. Til þess þarf að hafa samband við sitt fjarskiptafyrirtæki og panta þjónustuna, en öll fjarskiptafyrirtæki á markaði geta boðið þjónustu til notenda um kerfi Mílu.
Ljósnet er tenging sem byggir á svokallaðri VDSL-tækni. Ljósleiðari er tengdur alla leið í götuskáp/símstöð í nágrenni við heimilin og þar er settur upp búnaður sem tryggir hraða um koparendann, sem notaður er síðasta spölinn inn til notanda. Hraðinn sem fæst með Ljósneti í Stykkishólmi nægir auðveldlega fyrir 2-3 háskerpu sjónvörp, til að vafra á netinu, spila tölvuleiki yfir netið, hlusta á tónlist og horfa á sjónvarpsveitur, allt á sama tíma, án truflana.