Ljósleiðari Mílu hefur verið lagður í hluta Áslandshverfis í Hafnarfirði
Starfsmenn Mílu hafa s.l. mánuði unnið hörðum höndum að því að tengja íbúa höfuðborgarsvæðisins við Ljósleiðara Mílu.
Starfsmenn Mílu hafa s.l. mánuði unnið hörðum höndum að því að tengja íbúa höfuðborgarsvæðisins við Ljósleiðara Mílu. Nú þegar eiga um 35 þúsund heimili á höfuðborgarsvæðinu kost á að panta Ljósleiðara Mílu.
Míla hefur verið að tengja ljósleiðaralagnir í Áslandshverfi í Hafnarfirði og er nú lokið við að tengja heimili við Blikaás, Spóaás og Lóuás. Geta íbúar við þessar götur nú pantað Ljósleiðara Mílu í gegnum sitt fjarskiptafyrirtæki.