8. maí 2018

Ljósleiðari Mílu á Selfossi og í Reykjanesbæ

Eftir 16. júlí geta um 1500 heimili í Reykjanesbæ og á Selfossi sem eru með rör frá Mílu inn í hús, pantað ljósleiðaratengingu.

Míla á fjölda röralagna inn í hús í Reykjanesbæ og á Selfossi sem verða nýttar til að ljósleiðaravæða viðkomandi heimili. Eftir 16. júlí verður opnað fyrir pantanir á ljósleiðaratengingum fyrir um 1500 heimili í Reykjanesbæ og á Selfossi sem eru með rör frá Mílu inn í hús. Í boði verður 1 Gb/s internethraði á ljósleiðara Mílu. Hægt er að sjá hvaða heimilisföng þetta eru inni á heimasíðu Mílu hér.  Þar sem þegar eru til staðar rör, þarf ekki að fara í jarðvegsframkvæmdir á lóðum húseigenda, heldur á aðeins eftir að koma ljósleiðaraþræðinum fyrir í rörinu og tengja. Því fylgir lítið rask.

Þá verður hafist handa við að leggja ljósleiðara til heimila í eldri hverfum í báðum bæjarfélögum þar sem ekki eru til staðar rör og gefur Míla sér 3 ár til að ljúka því verkefni. Á þeim tíma er ætlunin að öll heimili í Reykjanesbæ og á Selfossi verði komin með ljósleiðara Mílu tengdan og geti nýtt sér 1 Gb/s internethraðann sem honum fylgir.

Ný hverfi

Fyrir nokkrum árum hætti Míla að leggja koparlínur í ný hverfi og hefur síðan þá lagt ljósleiðaralagnir í nýjum hverfum víða um land og þar á meðal á Selfossi og í Reykjanesbæ. Því eiga flest heimili í hverfum sem byggst hafa upp á undanförnum árum að vera með ljósleiðaratengingu frá Mílu.

Eldri hverfi

Þá verður hafist handa við að leggja ljósleiðara til heimila í eldri hverfum þar sem ekki eru til staðar rör og gefur Míla sér 3 ár til að ljúka því verkefni. Á þeim tíma eiga öll heimili í Reykjanesbæ og á Selfossi að vera komin með ljósleiðara Mílu og geta nýtt sér 1 Gb/s internethraðann sem honum fylgir.

 

Fjarskiptakerfi Mílu eru aðgengileg öllum fjarskiptafélögum sem selja þjónustu til einstaklinga, en Míla er heildsölufyrirtæki á fjarskiptamarkaði og selur þjónustu sína eingöngu til fyrirtækja með fjarskiptaleyfi. Einstaklingar tengjast kerfum Mílu í gegnum sitt fjarskiptafyrirtæki.