Hringtenging ljósleiðara á Vestfjörðum
Nú er hafin lagning ljósleiðara frá símstöðinni Stað í Hrútafirði til Hólmavíkur en um er að ræða útboð ríkisins vegna fyrri verkhluta hringtengingar ljósleiðara á Vestfjörðum.
Nú er hafin lagning ljósleiðara frá símstöðinni Stað í Hrútafirði til Hólmavíkur en um er að ræða útboð ríkisins vegna fyrri verkhluta hringtengingar ljósleiðara á Vestfjörðum. Seinni verkhluti verður á milli Nauteyrar í botni Ísafjarðardjúps og Súðavíkur, en sá hluti verður boðinn út síðar.
Samingur um lagninguna var undirritaður milli Mílu og Ríkiskaupa, þann 25. júní síðastliðinn og hófust framkvæmdir á vegum Mílu í lok júlí. Míla bauð verkið út og var samið við Austfirska verktaka sem voru með besta tilboðið. Orkubú Vestfjarða er samstarfsaðili Mílu í verkefninu og er lagður háspennustrengur megnið af leiðinni. Nú þegar hafa tæpir 40 kílómetrar af ljósleiðara og háspennustreng verið lagðir en alls er leiðin sem nú verður lögð um 115 km löng. Stefnt er að því að Míla klári þennan verkhluta fyrir lok þessa árs.
Um er að ræða ljósleiðarastofnstreng með möguleika á tengingum ljósleiðaraheimtauga inn á strenginn, en heimtaugar eru þó ekki hluti þessa samnings. Orkubú Vestfjarða leggur 3ja fasa háspennustreng, frá Borðeyri að Þorpum, sem kemur í stað einfasa loftlína sem komnar eru til ára sinna.
Míla ehf. byggir á yfir 100 ára reynslu af lagningu fjarskiptakerfa. Fyrirtækið á og rekur víðtækt kopar-, ljósleiðara- og örbylgjukerfi sem nær til allra heimila, fyrirtækja og stofnana á landinu og er Míla undirstaða fjarskiptaþjónustu um allt land.