Haustfundur Mílu
Haustfundur Mílu var haldinn fimmtudaginn 29.september á Hótel Nordica. Gestir fundarins voru viðskiptavinir Mílu og hagsmunaaðilar.
Haustfundur Mílu fór fram á Hótel Nordica, fimmtudaginn 29. september. Að þessu sinni var haldinn morgunfundur sem hófst kl. 9.00 og stóð til kl. 12.00. Gestir fundarins voru viðskiptavinir Mílu og hagsmunaaðilar.
Umræðuefni fundarins sneri aðallega að Aðgangsneti og héldu tveir erlendir gestafyrirlesarar erindi, þeir Jörgen Pettersson frá Ericsson og Eric Festraets frá Nokia. Erindi Jörgen Pettersson frá Ericsson fjallaði um niðurstöður úr síðustu neytendarannsókn Ericsson "10 hot consumer trends 2016". Eric Festraets fjallaði um GPON og það hvers vegna sú högun á ljósleiðara til heimila er algengust í löndum Evrópu. Að lokum héldu þeir Jón R. Kristjánsson framkvæmdastjóri Mílu og Héðinn Þorsteinsson vörustjóri Aðgangsnets hjá Mílu erindi en þeir fjölluðu um nýjungar og þróun í aðgangsneti Mílu.