Flugeldar í þúsundatali í beinni
Eins og síðustu ár verður hægt að fylgjast með magnaðri flugeldasýningu á gamlárskvöldi í Reykjavík, í gegnum vefmyndavélar Mílu í samstarfi við Iceland Naturally.
Eins og síðustu ár verður hægt að fylgjast með magnaðri flugeldasýningu á gamlárskvöldi í Reykjavík, í gegnum vefmyndavélar Mílu í samstarfi við Iceland Naturally. Míla er einnig með vefmyndavél á Akureyri, þar sem hægt verður að fylgjast með Akureyringum fagna nýju ári.
Íslendingar eru orðnir þekktir víða um heim fyrir magnaða flugeldasýningu á gamlárskvöld. Þá koma fjölskyldur saman og kveðja gamla árið og fagna því nýja með veisluhöldum, brennum um allt land og á miðnætti er skotið upp flugeldum í þúsundatali sem lýsa upp himininn. Úr verður stórfenglegt sjónarspil flugelda, þegar allir skjóta upp á sama tíma.
Míla hefur verið með vefmyndavélar sínar í loftinu frá árinu 2010 og eru þær nú 11 talsins. Vélarnar á Akureyri og í Reykjavík eru vel staðsettar til að fylgjast með flugeldaskotum íslendinga á gamlárskvöld en auk þeirra eru vélar m.a. staðsettar á Jökulsárlóni, við Gullfoss, við Kverkfjöll, á Suðurlandi með útsýni að Heklu og víðar.
Hægt verður að fylgjast með á vefmyndavélasíðu Mílu livefromiceland.is og á heimasíðu Iceland Naturally. Nú er bara að vona að skyggnið verði ákjósanlegt fyrir flugelda á síðasta degi ársins.