Fjarskipti - sterk staða Íslands
Nokkur umræða hefur verið um Ljósnet og ljósleiðara, og hefur umræðan m.a. snúist um það að notandi nettengingar verði ekki var við hvort síðasti hluti nettengingar fari yfir ljós eða kopar.
Alþjóðlega hefur bandvíddarviðmið fyrir þrjár tegundir þjónustu (e. triple play), þ.e. sjónvarp, internet og IP síma, verið 30Mb/s niðurhals hraði. Þess vegna er þessi hraði gjarnan notaður til samanburðar við mat á stöðu nettenginga mismunandi landa. Í slíkum samanburði er staða Íslands mjög sterk.
Gröfin sem fylgja þessari umfjöllun eru fengin úr samantekt nýrrar tölfræðiskýrslu sem eftirlitsstofnanir fjarskipta á Norðurlöndum og Eystrasaltslöndunum, hafa tekið saman um fjarskiptanotkun í átta löndum fyrir árið 2016. Samantektin er aðgengileg í heild sinni á heimasíðu Póst- og fjarskiptastofnunar www.pfs.is.
Á Myndinni hér fyrir ofan sést greinilega að Ísland hefur mikla yfirburði yfir nágrannalöndin hvað varðar fjölda tenginga á hvern íbúa með 30 Mb/s hraða eða meira. Á Íslandi eru 0,32 tengingar á hvern íbúa með yfir 30 Mb/s hraða, en næsta land á eftir er með 0,25 tengingar með yfir 30 Mb/s hraða á hvern íbúa. Noregur og Danmörk koma svo fast á hæla Svíþjóðar. Þetta má rekja beint til mikillar dreifingar á Ljósneti Mílu og aukningar í lagningu ljósleiðara til heimila.
Þá kemur einnig fram í skýrslunni að Ísland tekur mikið stökk á síðasta ári í fjölda 100 Mb/s tenginga á hvern íbúa, eða úr 0,09 tengingum í 0,17 tengingar á hvern íbúa og er Ísland í öðru sæti á eftir Svíþjóð. Þessi aukning skýrist af miklu leiti af því að hraðinn á Ljósnetinu jókst víða í 100 Mb/s, en einnig hóf Míla að leggja ljósleiðara alla leið til heimila á höfuðborgarsvæðinu á síðast ári og lauk við að tengja 30.000 heimili árið 2016.
Í þessu samhengi má minna á það að samkvæmt skýrslu Sameinuðu þjóðanna sem gefin var úr í lok síðasta árs er Ísland með öflugustu fjarskiptainnviði í Evrópu og þá næst bestu á heimsvísu á eftir S-Kóreu. Það er ansi góður árangur fyrir litla þjóð í strjálbýlu landi.
Míla er með tengingar til allra heimila á Íslandi og býður yfir 92% heimila í landinu háhraðatengingar með Ljósneti og Ljósleiðara. Við búum í fámennu stóru landi sem er erfitt í fjarskiptalegu tilliti sem gerir árangurinn enn athyglisverðari. Við hjá Mílu erum stolt af þessum góða árangri sem byggir á áratuga uppbyggingarstarfi. Míla mun á næstu árum halda áfram uppbyggingu með áherslu á ljósleiðara sem vonandi mun tryggja áframhaldandi góða stöðu Íslands í alþjóðlegum samanburði.