12. desember 2017

Aukinn hraði á Akureyri

Míla hefur aukið hraðann á heimilistengingum yfir ljósleiðara á Akureyri úr 500 Mb/s í 1 Gb/s. 

Hér er um talsverða aukningu að ræða sem endurspeglast í betri upplifun á internetinu og betri gæðum þegar verið er að nota snjalltæki heimilisins. Breytingin tók gildi 1. desember síðastliðinn.  Míla bíður heimilistengingar yfir ljósleiðara á eigin kerfum en einnig á kerfum í eigu annarra.

Síðustu ár hefur Míla lagt ljósleiðara í allar nýbyggingar á Akureyri og fylgir því enginn stofnkostnaður fyrir íbúa að fá ljósleiðara Mílu tengdan í húsið.