100 Mb/s Ljósnet á Akureyri
Míla hefur ákveðið að uppfæra Ljósnetsbúnað frá símstöðvunum Akureyri og Glerá í vigrunar hæfan búnað.
Míla hefur ákveðið að uppfæra Ljósnetsbúnað út frá símstöðvunum Akureyri og Glerá í vigrunar hæfan búnað. Þar með gefst þjónustuveitendum kostur á að veita þar allt að 100Mb/s Ljósnetstengingar til heimila á Akureyri. Gert er ráð fyrir að opnað verði fyrir þennan möguleika þann 10. október 2016 eða eftir 3 mánuði frá tilkynningu þessari. Áætlað er að framkvæma útskiptingu búnaðarins í ágúst - september og verður tilkynnt um það með hefðbundnum hætti.