Vettvangsþjónusta Mílu

Míla býður viðskiptavinum sínum vettvangsþjónustu, sem felst í þjónustu fyrir innan húskassa, meðal annars í uppsetningu búnaðar og bilanaþjónustu.

 

Vettvangsþjónustu er nú í boði fyrir viðskiptavini Mílu. Þjónustan felst m.a. í lagningu innanhússlagna, uppsetningu á beini ásamt tengingu á  endabúnaði (allt að 3 tæki). Míla hefur ákveðið að taka á sig þennan kostnað á höfuðborgarsvæðinu þegar það þarf að setja upp ljósbreytu hjá endanotanda. Þegar ljósbreyta er til staðar geta fjarskiptafyrirtækin keypt þessa þjónustu af Mílu. Vettvangsþjónustan sinnir einnig bilanaþjónustu.