Míla hefur yfir að ráða öflugu og fjölþættu aðgangsneti að fjarskiptanetinu.

Stefna Mílu er að taka virkan þátt í uppbyggingu á íslensku þjóðfélagi. Míla stefnir að því að leggja sitt af mörkum til þess að á Íslandi verði heilbrigðri umhverfisstefnu framfylgt. Einnig ætlar Míla að leggja lóð sitt á vogarskálarnar með stuðningi við uppbyggingu afreksíþrótta á Íslandi.
Míla er stoltur styrktaraðili kvennalandsliðs Íslands í handbolta. Míla hefur gert styrktarsamning við HSÍ og er einn af þremur aðalstyrktaraðilum kvennalandsliðsins í handbolta 2010 - 2013 og leggur þannig sitt að mörkum við uppbyggingu afreksíþrótta á Íslandi.
Í ár áunnu stúlkurnar í kvennalandsliðinu sér þátttökurétt á Evrópumeistaramóti kvenna í handbolta sem er í fyrsta skipti sem íslenskt kvennalandslið í þessari grein kemst á stórmót sem þetta.