Míla hefur yfir að ráða öflugu og fjölþættu aðgangsneti að fjarskiptanetinu.

Míla hefur mótað sér stefnu í lýðheilsumálum. Fyrirtækið leggur mikla áherslu á líkamlegt og andlegt heilbrigði starfsmanna sinna. Til þess að efna lýðheilsumarkmið sín styður Míla starfsmenn til heilbrigðrar hreyfingar og almennrar hollustu.
Lögð er áhersla á stuðning til hreyfingar að eigin vali innan og utan vinnutíma. Lýðheilsustarf miðar að því að viðhalda og efla heilbrigði fólks, með forvarnarstarfi og samfélagslegri ábyrgð á heilbrigði. Míla mun efla fræðslu um lýðheilsumál auk þess að hvetja starfsmenn til heilbrigðra lífshátta í framtíðinni.