Um Mílu

Míla hefur yfir að ráða öflugu og fjölþættu aðgangsneti að fjarskiptanetinu.

Fjarskiptakerfi Mílu

Fjarskiptakerfi Mílu er mjög víðtækt og dreift.  Það byggir á tveim meginkerfum sem eru stofnnet og aðgangsnet.  Auk þessara kerfa starfrækir Míla einnig alþjóðanet, sem tengir Ísland við umheiminn.

Stofnnetið

Stofnnet Mílu byggir á koparlínum, ljósleiðurum og örbylgjusambandi. Stofnnetið nær til allra þéttbýliskjarna landsins. Ljósleiðarakerfið er meginburðarlag fyrir fjarskiptakerfin. Uppbygging ljósleiðarakerfisins er þannig háttað að ávallt er reynt að tryggja hringtengingu til að auka öryggi fjarskiptakerfisins. Á þeim svæðum sem ekki eru tengd ljósleiðara, eru stafræn örbylgjusambönd notuð.

Aðgangsnetið

Míla hefur yfir að ráða öflugu og fjölþættu aðgangsneti að fjarskiptanetinu. Aðgangsnetið byggir á koparlínum, ljósleiðurum og kóaxstrengjum. Koparlínukerfi Mílu er mjög víðtækt þar sem nærri öll heimili, fyrirtæki og stofnanir í landinu eru tengd kerfinu. Þegar um er að ræða tengingar til fyrirtækja, þá hefur ljósleiðari verið lagður í flestum þéttbýliskjörnum landsins til að tryggja viðskiptavinum háhraðaaðgang inn á ATM, IP-netið eða Internetið. Ljósleiðaranetið er byggt upp á svipaðan hátt og koparlínukerfið. Það byggir á ljósleiðara sem liggur frá símstöð í götuskáp og þaðan inn í hús er kóaxstrengur og/eða ljósleiðari. Í framtíðinni mun Míla eingöngu leggja ljósleiðara í ný hverfi í stað koparlína.  

Alþjóðanet

Það eru tveir sæstrengir sem tengja Ísland við Evrópu og Ameríku, CANTAT-3 og FARICE-1. Hlutverk Mílu er að sjá um rekstur og viðhald strengjanna. Míla vinnur í náinni samvinnu við framkvæmdastjóra Farice varðandi rekstur og viðhald strengjanna. Það eru tvær línur í Farice sæstrengnum, ein sem liggur beint milli Íslands og Skotlands og önnur sem liggur milli Íslands og Skotlands, með viðkomu í Færeyjum. CANTAT-3 liggur milli Norður Ameríku og Vestur Evrópu og tengist við fjarskiptanet í Danmörku, Þýskalandi og Bretlandi.




Stuðningsleiðarkerfi