Míla er lífæð samskipta.

Fjarskiptakerfi Mílu er mjög öflugt og fjölþætt og byggist upp á tveimur meginkerfum; stofnneti og aðgangsneti. Míla leggur mikla áherslu á stöðuga uppbyggingu fjarskiptakerfisins til að tryggja sem besta nýtni þess ásamt því að setja á markað nýjar lausnir. Mikið rekstrar- og gagnaöryggi er lykilkrafa í uppbyggingu og rekstri fjarskiptakerfis Mílu.
Míla sérhæfir sig meðal annars í rekstri og ráðgjöf vegna fjarskiptakerfa, aðstöðuleigu fyrir upplýsingatækni og ýmsa þjónustu við dreifikerfi.
Fjarskiptanet Mílu tengir saman einstaklinga og fyrirtæki og er miðpunktur flestra fjarskipta á Íslandi auk þess að tengja landið við umheiminn. Míla er í eigu Skipta og var stofnað í apríl 2007. Undir merkjum Mílu er fullkomið koparkerfi og ljósleiðara- og örbylgjukerfi sem nær um allt land.
Fjarskiptakerfi Mílu er öflugt og fjölþætt og byggist upp á nokkrum meginkerfum; stofnneti, aðgangsneti og alþjóðaneti. Kerfi Mílu má líkja við þjóðbraut fjarskipta fyrir talsíma, GSM síma, gagnaflutninga, sjónvarp og útvarp annarra fyrirtækja. Míla selur vörur sínar í heildsölu til fyrirtækja sem eru með fjarskiptaleyfi.
Net Mílu er með bandbreidd sem er í samræmi við kröfur markaðarins hverju sinni. Árið 1986 var flutningsgeta fyrsta áfanga ljósleiðarans frá Reykjavík til Selfoss 140 Mb/s. Þessi flutningsgeta gat borið 2.000 talrásir og þá var talið að hún dygði um aldur og ævi. Nú er öldin önnur og talið er að þörfin fyrir bandbreidd aukist nú árlega um 130%.
Míla leggur ríka áherslu á áreiðanleika og rekstraröryggi og verður í stöðugri framþróun í þeim tilgangi að halda forystu á fjarskiptamarkaði. Fyrirtækið ætlar sér að leita bestu lausna hverju sinni og veita faglega þjónustu.
Höfuðstöðvar
Stórhöfði 22-30
110 Reykjavík
Ísland
Um fyrirtækið
Kennitala: 460207-1690
VSK númer: 10982
Veffang: mila.is
Netfang:mila@mila.is
Sími: 585-6000
Fax: 585-6050
Reikningar
Reikningar til Mílu skulu vera stílaðir á eftirfarandi hátt