Míla byggir upp og rekur fullkomnasta fjarskiptanet á Íslandi.


Míla reisti nýlega nýtt mastur á Ólafsfirði, en mastrið stendur við tækjahús Mílu á Ólafsfirði. Um er að ræða 18 metra stálmastur sem smíðað var á Akureyri. Mastrið er hluti af þjónustu Mílu við 3G uppbyggingu Símans, en mastrið er það hátt og sterkt að það getur hæglega hýst búnað annarra fjarskiptafyrirtækja líka. Mastrið eykur því aðstöðu Mílu umtalsvert, til að þjóna fjarskiptafyrirtækjum á svæðinu.
Stöðugt er verið að auka á aðstöðu hjá Mílu til að þjónusta fjarskiptafyrirtækin um land allt, en mikill búnaður fylgir oft þeirra þjónustu. 3G væðing stendur yfir um landið og þegar aðstöðu skortir, þá kemur Míla á móts við fjarskiptafyrirtækin, t.d. með því að reisa möstur sem þetta, til að geta hýst búnað sem nauðsynlegur er svo hægt verði að veita notendum þá þjónustu sem kallað er eftir.

Unnið við að reisa mastrið á Ólafsfirði

Mastrið risið

Mastrið tengt og tilbúið fyrir notkun
« Til baka