Um Mílu

Míla byggir upp og rekur fullkomnasta fjarskiptanet á Íslandi.

Míla styrkir kvennalandslið HSÍ

21.05.2010 16:03
Samningur við HSÍ

Í hádeginu í dag fór fram blaðamannafundur á vegum HSÍ á Hótel Loftleiðum þar sem verkefni A-landsliðs kvenna í næstu viku voru kynnt. Einnig var skrifað undir samstarfssamning Mílu og HSÍ og mun Míla verða einn af aðalstyrktaraðilum kvennalandsliðs HSÍ, ásamt Póstinum og Lyfju.  Það er HSÍ mikið gleðiefni að hefja samstarf við Mílu.

Míla hefur sett í stefnu sína að taka þátt í ýmsum samfélagsverkefnum. Þar hefur verið lögð áhersla á afreksíþróttir síðustu þrjú ár. Míla telur mikilvægt að halda áfram stuðningi við íþróttahreyfinguna í landinu, þrátt fyrir breytta tíma og hefur tekið upp samstarf við HSÍ og kvennaboltann. 

Kvennalandslið HSÍ hefur unnið mikil afrek síðustu mánuði.  Á miðvikudaginn 26. maí mun íslenska kvennalandsliðið spila gegn því franska í undankeppni EM 2010. Til að tryggja sæti á lokakeppni EM þarf íslenska liðið eitt stig, og ef það tekst verður það í fyrsta sinn í íslenskum kvennahandbolta.

Míla hvetur alla til að mæta á leikinn á miðvikudaginn, því fullt hús af hvetjandi áhorfendum eru ígildi áttunda leikmannsins á vellinum og getur skilið milli sigurs og taps. 

Facebook síða kvennalandsliðsins í handbolta

 

« Til baka



Stuðningsleiðarkerfi