Míla byggir upp og rekur fullkomnasta fjarskiptanet á Íslandi.


Nú hafa komið um 4 milljónir heimsókna á heimasíðu Mílu til að fylgjast með gosinu frá því Míla setti upp fyrstu myndavélarnar á gossvæðinu. Heimsóknirnar koma frá löndum frá öllum heimsálfum og eru aðeins 4 lönd/landsvæði eftir sem ekki hafa enn nýtt sér myndavélar Mílu, Norður-Kórea, Sómalía, Svalbarði/Jan Mayen og Vestur-Sahara.
Samkvæmt mælingum á notkun á vefmyndavélum Mílu sem Modernus hóf að mæla síðastliðinn fimmtudag, þá er heimasíða Mílu orðin stærsta heimasíðan á landinu og með langflestar heimsóknir. Frá fimmtudagskvöldi og til miðnættis á sunnudag var fjöldi stakra heimsókna á vefmyndavélar Mílu um 1.112.000 talsins en þessar tölur er hægt að sjá á heimasíðu Modernus. Í tilkynningu sinni í dag segir Modernus : ,,Aldrei áður í 10 ára vefmælisögu sinni, hefur Modernus upplifað annað eins skot á gagnagrunninn. Þá eru tímasetningar eins og 11.september, silfrið á Ólympíuleikunum 2008 og bronsið á Evrópumeistaramótinu í fyrra með taldar.” Mælingar hafa aðeins staðið í nokkra daga og hefur heimasíða Mílu nú þegar sprengt allar tölur og áhuginn á gosinu er engu líkur.
Vinsældir myndavélanna hafa því verið hreint út sagt ótrúlegar. Margar stærstu fréttastöðvar heims hafa haft samband við Mílu og óskað eftir leyfi til að nota myndir frá vélunum á sínum fréttasíðum, en áhugi erlendra fréttamiðla á gosinu hefur verið mjög mikill, enda áhrif gossins gífurleg um alla álfuna. Einnig hefur fjöldi fólks frá ýmsum löndum verið í sambandi við Mílu vegna vélanna, bæði til að spyrjast fyrir um gosið og til að þakka fyrir þessa frábæru þjónustu.
« Til baka