Um Mílu

Míla byggir upp og rekur fullkomnasta fjarskiptanet á Íslandi.

Flugeldasýning á Jökulsárlóni í beinni á live.mila.is

24.08.2012 16:12

Árleg flugeldasýning verður haldin við Jökulsárlón annaðkvöld, laugardagskvöld.  Auk þess að skjóta upp flugeldum verða ísjakar í lóninu lýstir upp með kertaljósi svo það má búast við miklu sjónarspili.

Frá árinu 2010 hefur Míla starfrækt vefmyndavélar víða um land og þar á meðal á Jökulsárlóni. Vefmyndavél Mílu á Jökulsárlóni er frábærlega staðsett til að fylgjast með flugeldunum og upplýstu lóninu á laugardagskvöldið, en vefmyndavélin er aðgengileg á slóðinni live.mila.is/jokulsarlon

« Til baka



Stuðningsleiðarkerfi