Míla byggir upp og rekur fullkomnasta fjarskiptanet á Íslandi.

Á síðustu misserum hefur verið unnið að hagræðingu í rekstri Skiptasamstæðunnar sem miðar að því að bregðast við minnkandi rauntekjum á fjarskiptamarkaði samhliða verulegri kostnaðarverðbólgu innanlands. Hagræðingaraðgerðir hafa snert öll fyrirtæki samstæðunnar en stærstu dótturfyrirtækin eru Síminn, Míla og Skjárinn.
Nú um mánaðamótin kemur til framkvæmda uppsögn á 17 starfsmönnum hjá Skiptasamstæðunni, auk þess sem 15 starfsmenn flytjast frá Mílu yfir til Símans. Með þessum breytingum er fyrst og fremst verið að einfalda ferla og koma í veg fyrir tvíverknað hjá fyrirtækjum samstæðunnar, en einnig er um almennar sparnaðaraðgerðir að ræða. Markmiðið með aðgerðunum nú er sparnaður um a.m.k. 500 milljónir kr. á ársgrundvelli.
Steinn Logi Björnsson, forstjóri Skipta: „Það var fyrirséð síðastliðið haust að hægt væri að samþætta reksturinn hjá fyrirtækjum samstæðunnar til þess að straumlínulaga reksturinn og spara. Þessar breytingar núna eru eðlilegt framhald af hagræðingum síðasta árs og nauðsynlegar þar sem kostnaður hefur hækkað og rauntekjur okkar minnkað á sama tíma. Við höfum vandað þessa vinnu og með endurskipulagningu og fullnýtingu á þeirri þekkingu og tækni sem félögin hafa yfir að ráða er okkur eftir sem áður kleift að veita alhliða þjónustu um allt land og fjárfesta í innviðum fjarskiptaþjónustu á Íslandi.”
Skipti bjóða fram aðstoð við starfsmenn í kjölfar uppsagnanna, sem þýðir m.a. að ráðgjafar hafa samband við þá og aðstoða í atvinnuleit. Hjá Skiptum og dótturfélögum starfa um 800 manns á Íslandi.