Um Mílu

Míla byggir upp og rekur fullkomnasta fjarskiptanet á Íslandi.

70% heimila á höfuðborgarsvæðinu með aðgengi að háhraðaneti Mílu

03.05.2012 13:50

Ísland er eitt netvæddasta land í heimi og ekki algengt að íbúar annarra landi hafi aðgang að jafn hröðum tengingum og við Íslendingar. Nú þegar hafa um 70% heimila á höfðuborgarsvæðinu möguleika á aðgengi að háhraðaneti Mílu og ekki verið þörf á að grafa upp heilu hverfin til að veita þennan aðgang. Míla hefur til margra ára lagt lagnir fyrir ljósleiðara á hagkvæman hátt á höfuðborgarsvæðinu og víða um land, þar sem jarðvinna hefur átt sér stað. 
Nú hefur verið gefið út markmið varðandi ljósvæðingu hjá Mílu og Skiptum og er ætlunin að veita öllum heimilum frá Borgarnesi til Hvolsvallar að meðtöldum Vestmannaeyjum og þéttbýlisstöðum á Reykjanesskaga, aðgang að ljósleiðaraneti sínu fyrir lok árs 2014.  Þá verða um 90 þúsund heimili sem nemur 75% heimila á öllu landinu, komin með möguleika á aðgangi að háhraðaneti Mílu.

« Til baka



Stuðningsleiðarkerfi